Póstur: Alveg að koma að þessu

15.12.2006

Permalink 11:56:48, Flokkar: París  

Alveg að koma að þessu

Við fljúgum semsagt út eldsnemma í fyrramálið, fyrst er förinni heitið til Parísar þar sem við ætlum að gleðja Rikka bróður minn með nærveru okkar í einn sólarhring :)
Þaðan verður flogið til London með 2 tíma stoppi og síðan Miami með 12 tíma næturstoppi. Lending í Caracas er áætluð á hádegi þann 18. des

Mig dreymdi enn einu sinni í nótt að ég eignaðist barn.. ég hef hreinlega ekki tölu á því lengur hversu oft mig hefur dreymt þann draum, en nú fletti ég upp á því í stóru draumaráðningabókinni okkar og viti menn:

"Finnist konu hún hafa eignast barn í draumi þótt hún hafi ekki verið ólétt mun henni takast að ljúka ætlunarverkum sínum á farsælan hátt"!
ekkert nema gott og blessað það :)

jæja yfir og út, bloggum frá PARÍS á morgun

Sigga

Trackback address for this post:

http://www.suduramerika.com/htsrv/trackback.php/30

Skoðanir, Trackbacks:

Athugasemd frá: Lára [Gestur] Email · http://www.blog.central.is/miss_doria
Góða ferð elsku bestu og hugrökkustu vinkonur!!! hlakka til að heyra allt um þessa frábæru ferð ykkar! kossar og knús
Lára
PermalinkPermalink 15.12.2006 @ 23:38
Athugasemd frá: Ólafur Kristjánsson [Gestur] Email
Hæ heyrði að þið væruð nú komnar til Miami á hótel. Gott að allt gengur samkvæmt áætlun. Kv. Óli. Glói og Mía biðja að heilsa.
PermalinkPermalink 18.12.2006 @ 02:11

Comments are not allowed from anonymous visitors.

February 2012
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
<< <     
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29        

Ævintýri í Suður-Ameríku

Sigga, Halla og Inga María á ferðalagi um Suður-Ameríku í 25 vikur

Locations of visitors to this page

Leita

Flokkar

Ýmislegt

XML Straumar

What is this?

powered by
b2evolution