Hola !
Í dag fórum við upp á El Avila sem er fjallið hérna fyrir ofan Caracas, tókum kláf þangað upp í svona korter.. mjög mjög hátt. Skýjum ofar.
Komum svo aftur í heimsókn til Guðrúnar og Walesku, gátum alveg sjálfar í leigubíl! :) Maður er ekki enn búinn að læra á peningana, Sigga borgaði bílstjóranum 20.000 bolivares í staðin fyrir 2000, svo skildum við ekkert þgera hann var að rétta okkur 17.000 tilbaka. Heiðarlegur bílstjóri sem betur fer.. annars eru 3000 bolivares = 100 kr íslenskar svona svo þið fáið einhverja hugmynd. Flest er soldið dýrara en við höfðum gert okkur í hugarlund.. Það er eiginelga bara ekkert ódýrt hérna nema almenningssamgöngur - og kannski bjórinn. Svona þetta allra nauðsynlegasta :)
Þið fáið herna tvær myndir með, litla stelpan er Adnilem dóttir Melindu sem við búum hjá hérna í Caracas. Ooo okkur langar sko bara að eiga hana hún er svo sæt! Er rétt að hætta að vera feimin við okku eftir að hún uppgötvaði stafrænu myndavélarnar okkar sem geta tekið mynd af henni og sýnt henni strax :)
Ekkert fleira að frétta í bili..
Kveðja
Sigga, Halla og Inga María
| Mon | Tue | Wed | Thu | Fri | Sat | Sun |
|---|---|---|---|---|---|---|
| < | Current | > >> | ||||
| 1 | 2 | 3 | ||||
| 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
| 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
| 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
| 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Sigga, Halla og Inga María á ferðalagi um Suður-Ameríku í 25 vikur