Póstur: caracas, dagur 3

21.12.2006

Permalink 02:17:38, Flokkar: Venezuela  

caracas, dagur 3

Hola !

Í dag fórum við upp á El Avila sem er fjallið hérna fyrir ofan Caracas, tókum kláf þangað upp í svona korter.. mjög mjög hátt. Skýjum ofar.
Komum svo aftur í heimsókn til Guðrúnar og Walesku, gátum alveg sjálfar í leigubíl! :) Maður er ekki enn búinn að læra á peningana, Sigga borgaði bílstjóranum 20.000 bolivares í staðin fyrir 2000, svo skildum við ekkert þgera hann var að rétta okkur 17.000 tilbaka. Heiðarlegur bílstjóri sem betur fer.. annars eru 3000 bolivares = 100 kr íslenskar svona svo þið fáið einhverja hugmynd. Flest er soldið dýrara en við höfðum gert okkur í hugarlund.. Það er eiginelga bara ekkert ódýrt hérna nema almenningssamgöngur - og kannski bjórinn. Svona þetta allra nauðsynlegasta :)

Þið fáið herna tvær myndir með, litla stelpan er Adnilem dóttir Melindu sem við búum hjá hérna í Caracas. Ooo okkur langar sko bara að eiga hana hún er svo sæt! Er rétt að hætta að vera feimin við okku eftir að hún uppgötvaði stafrænu myndavélarnar okkar sem geta tekið mynd af henni og sýnt henni strax :)

Ekkert fleira að frétta í bili..
Kveðja
Sigga, Halla og Inga María

Trackback address for this post:

http://www.suduramerika.com/htsrv/trackback.php/36

Skoðanir, Trackbacks:

Athugasemd frá: Siggupabba [Félagi] Email
Erum búin að stilla Skype þannig að allt hverfið á að taka eftir því ef einhver hringir ;-)
Heyrumst vonandi fljótlega.
Bestu kveðjur frá öllum.

Siggupabbi
PermalinkPermalink 21.12.2006 @ 12:49
Athugasemd frá: Siggumömmu [Félagi] Email
Hæ hæ stelpur!
Hérna er rok og rigning,og það verður svona áfram næstu daga,það væri notalegt að vera komin þarna til ykkar,og maka á sig sólarvörn,en jólaundirbúningurinn er í hámarki þessa daga.

Allir biðja að heilsa.
PermalinkPermalink 21.12.2006 @ 17:47
Athugasemd frá: Óli [Gestur] Email
Hér eru búin að vera svakaleg flóð um allt land vegna asahláku. Ár flæða yfir bakka sína og hestar drukkna. 30 ára gömul tré rinuðu upp með rótum á Grenimel í kvöld.
Fóruð þið á ströndina?
PermalinkPermalink 22.12.2006 @ 01:37
Athugasemd frá: Inga María [Gestur] Email
sjaese! já fórum á strondina :) bloggum a eftir..!
PermalinkPermalink 22.12.2006 @ 18:36

Comments are not allowed from anonymous visitors.

February 2012
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
<< <     
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29        

Ævintýri í Suður-Ameríku

Sigga, Halla og Inga María á ferðalagi um Suður-Ameríku í 25 vikur

Locations of visitors to this page

Leita

Flokkar

Ýmislegt

XML Straumar

What is this?

powered by
b2evolution