Póstur: Gleðilegt nýtt ár 2007!!!

31.12.2006

Permalink 18:45:59, Flokkar: Venezuela  

Gleðilegt nýtt ár 2007!!!

Við erum enn á lífi eftir brúarstökkin! :) Vá þetta var geeeggjað!! ..eiginlega bara alls ekki hægt að lýsa tilfinningunni. Við hoppuðum semsagt fram af brú hérna í miðbæ Merida, hellings umferð yfir hana og allt. Það fóru 10 manns úr hópnum okkar og enginn hætti við að stökkva þó að nokkrir væru tæpir. Byrjaði allt voða dramatískt með niðurtalningu og fólk var alveg með gúmmífætur uppi á brúninni. Inga María tók ofurmanninn á þetta og hún var ekki fyrr komin upp er hún hvarf niður. Hún var svo snögg að ljóskurnar vinkonur hennar náðu ekki að taka það upp á video. En við erum að fara að hoppa aftur svona í Ecuador, það verður líka miklu flottara stökk því við erum orðnar vanar núna ;) Halla var síðust af öllum, og hoppaði í kolniðamyrkri. Hvarf ofan í hyldýpið..
Það voru rúmir 30 metrar niður að ánni fyrir neðan og reipið sem við stukkum í var 27 metra langt. Engin teygja eða neitt í því svo maður þurfti að stökkva eins langt út og maður gat, eins og maður ætlaði að fljúga!

Í dag ætluðum við að fara í svifflug, en höfðum svo margt að gera fyrir kvöldið að við ætlum að láta það bíða betri tíma. Við vorum víst líka þær einu í hópnum sem ætluðu.

Í kvöld förum við á veitingahús sem opnar eingöngu fyrir okkur, það hefur sætispláss fyrir 36 manns eða akkurat okkar fjölda! Eftir það mun leiðin okkar liggja á nærliggjandi bar, sem einnig opnar bara fyrir okkur :) :) Flestir Venezuelar eyða áramótunum í faðmi fjölskyldunnar og þeir eru víst ekki eins partíglaðir og við vesturlandabúar ættum að venjast, en það er mjög flott að fá bara einkasamkvæmi í staðinn!

Það er einhver bíll búinn að vera að elta okkur síðan við komum hingað fyrst, hann er með mjög viðkvæma þjófavörn sem er ALLTAF að fara í gang. Daga og nætur. Þeir sem hafa gist hjá Melindu kannast við hann ;) Fyrst fannst okkur þetta óþolandi en núna er þetta eiginlega bara farið að verða svolítið fyndið. Hljóðin eru farin að verða sem ljúfur söngur og þetta er bara heimilislegt.

Á morgun förum við til Los Llanos og þaðan beint til Amazon, svo það gæti liðið soldill tími þar til við færum ykkur nýjar fréttir.

Getum ekki sett brúarstökksvideoið inn, en það er komin 71 ný mynd inn á suduramerika.com/Coppermine undir sigga>Merida ath myndirnar eru ekki allar frá Merida en við ákváðum að það væri bara einfaldast að setja allar nýju myndirnar saman í möppu.

Heyrumst næst í Brasilíu! :)

kveðja
Sigga, Halla og Inga María

Trackback address for this post:

http://www.suduramerika.com/htsrv/trackback.php/42

Skoðanir, Trackbacks:

Athugasemd frá: Essbje [Gestur] Email
Jæja stúlkuborn!

Gleðilegt nýtt ár!!! Áramótin voru hjá ykkur fyrir 15 mínútum þegar þetta er skrifað. Við erum í partýi hjá Soru og Gulleik og það er mikið stuð og græjurnar í botni og núna þenur Snoop Dogg raddbondin.
Mér finnst þetta stokk hjá ykkur skrýtið. Var engin teygja í bandinu segið þið.........er það ekki full langt gengið?
Allir biðja að heilsa ;)
PermalinkPermalink 01.01.2007 @ 05:25
Athugasemd frá: Þórey [Gestur] Email
Wtf, hvers konar stökk var þetta ef það var engin teyja? Tarzan? Btw, viljið þið kaupa fyrir mig litla skjaldböku af indjánum þegar þið komið til Perú?
PermalinkPermalink 01.01.2007 @ 17:40
Athugasemd frá: Ole [Gestur] Email
Vá, hvílíkar hetjur. Gleðilegt nýtt ár!
PermalinkPermalink 01.01.2007 @ 20:56
Athugasemd frá: Siggupabba [Félagi] Email
Vonum bara að okur verði eitthvað svefnsamt eftir þennann lestur. Ofurkrílið okkar að stökkva fram af einhverri 30 metra hárri brú í 27 metra kaðli, engin teygja og enginn gormur (þó vatn undir). Hvernig skyldi hún vera í laginu núna blessunin? :-)
Bestu nýjárskveðjur til ykkar stelpur, við fylgjumst grannt með þessum vef þar til næstu færslur berast.

Siggupabbi & Siggumamma
PermalinkPermalink 02.01.2007 @ 00:10
Athugasemd frá: Hanna frænka [Gestur] Email
Gleðilegt ár, mikið svakalega er gaman hjá ykkur en í guðsbænum farið þið varlega. Það fer um mann að hugsa til ykkar í þessu kaðalstökki. En ég er ánægð að heyra að þið nýtið aðstöðuna til fulls og lifið ferðina í botn.
PermalinkPermalink 02.01.2007 @ 14:26
Athugasemd frá: sahara fraenka [Gestur] Email
Gledilegt ar tho ad i dag se annar i 007. Thid erud eiginlega eins og hann 007 stokkva nidur i reipi uff erud thid enntha med lappir ha? Svo gaman ad lesa postana fra ykkur, hljomar guddomlega skemmtilegt og aevintyralegt. Gud blessi ykkur litlu minar. Ast og kaerleikur fra okkur a Hateigsvegi.
PermalinkPermalink 02.01.2007 @ 16:24
Athugasemd frá: Árni [Gestur] Email
gleðilegt nýtt ár elskurnar mínar.
Er í þessum orðum að reyna að fresta tiltektini eftir áramótapartýið ennþá meira og er það vel.
ykkur var sárt saknað af öllum sem dönsuðu hér á víðimel 40 fram til morguns en við hugguðum okkur við það að þið væruð að skemmta ykkur frábærlega í útlandinu.


PermalinkPermalink 02.01.2007 @ 19:30
Athugasemd frá: Tóta gönguklúbbsvinkona Grenimelsfjölskyldunnar [Gestur]
Vá maður fær bara fiðring í magann.....þið eruð greinilega að upplifa mikið ævintýri! Hlakka til að fylgjast áfram með ykkur ;-) Kv. Tóta gönguklúbbsvinkona Grenimelsfjölskyldunnar
PermalinkPermalink 02.01.2007 @ 19:58
Athugasemd frá: Essbje [Gestur] Email
Hi stelpur!
Ég sendi slóðina ykkar út og suður svo fólk geti lesið bloggið og fylgst með ykkur. Nú hafa nokkrir haft samband við mig og segjast ekki finna linka á myndirnar. Ég hef nú skýrt út hvar þær er að finna en er ekki hægt að hafa linka á allar myndir til hliðar á aðalsíðu.........þannig að þetta blasi við leikmönnum?? Góða skemmtun áfram, áfram :)
PermalinkPermalink 02.01.2007 @ 21:07
Athugasemd frá: Siggumömmu [Félagi] Email
Hæ hæ og gleðilegt nýtt ár !
Við vorum hjá Kjartani og Ásdísi á gamlárskvöld, mikið sprengt,og reykjarmökkur yfir öllu, svo við Ásdís flúðum inn og upplifðum eins og komin væri heimsstyrjöld, aldrei verið eins mikið skotið.
Rikki og Ásta fóru í morgun til Parísar og lentu í smá hrakningum á leiðinni, vélin missti hæð og Rikki vissi ekki fyrr en hann sat með nokkra matarbakka í fanginu =, en þetta var svo allt í lagi.
Sakna þess að hafa ykkur ekki að dúllast fyrir framan segilinn =)
Bestu kveðjur stelpur mínar og gangið hægt um gleðinnar dyr.
Góða skemmtun.

Siggumamma (Mörgæsin)
PermalinkPermalink 02.01.2007 @ 22:21
Athugasemd frá: Lóa Ingufrænka [Gestur] Email
Gleðilegt ár skvísur ! Rock on stelpur- lífið er frábært láti maður ekkert aftra sér frá því að njóta Þess.
með bestu kveðju
Lóa
PermalinkPermalink 03.01.2007 @ 10:47
Athugasemd frá: Rikki [Gestur] Email
Ég setti tengil á Myndirnar uppi í hægri dálkin.

Endilega látið vita ef þið eruð með hugmyndir um viðbætur.
PermalinkPermalink 03.01.2007 @ 16:14
Athugasemd frá: Essbje [Gestur] Email
Hi Rikki! (og þið stelpur líka!!) Takk fyrir skjót viðbrögð.
Heppilegt að hafa vefstjóra sem er alltaf tengdur en er ekki að þvælast um regnskóga og þess háttar. :)
PermalinkPermalink 03.01.2007 @ 18:36
Athugasemd frá: sigrun kristjansdottir [Gestur] Email
Sæl elsku Inga María og gleðilegt ár
gaman að lesa bloggið ykkar, þvílíkt ævíntýri hjá ykkur, farið varlega og eigið áfram góða ferð. Björgvin og Andri biðja að heilsa, Katrín er í jólafríi, læt hana vita af blogginu
Didda og fjölskylda
PermalinkPermalink 04.01.2007 @ 23:32
Athugasemd frá: Gunna [Gestur] Email · http://www.myspace.com/girnd
gaman að heyra hve gaman er hjá ykkur, sakna Ingu Maríu ýkt mikið í vinnunni, það er ööööömurlegt hérna án hennar, er með ýkt mikið random slúður og smáatriði sem ég get engum sagt... er að springa!!!

steini biður að heilsa
PermalinkPermalink 05.01.2007 @ 21:28
Athugasemd frá: Siggupabba [Félagi] Email
Allt í lagi að slúðra smá hérna,
segjum engun ;-)
PermalinkPermalink 05.01.2007 @ 22:37
Athugasemd frá: Grenimel 30 [Gestur] Email
Hola!
Nú hafið þið verið í ferðinni í 14 daga og "aðeins" 157 dagar eftir :)
Það er 13.nn og enn verið að sprengja og skjóta upp. Aumingja Glói hefur gengið í "slow motion" síðan á milli hátíðanna, hann er svo stressaður á þessu.
Vona að þið hafið ekki verið bitnar af eitruðum kvikindum í frumskóginum. Sáuð þið þessar frægu stökkkóngulær??
PermalinkPermalink 06.01.2007 @ 21:58
Athugasemd frá: Essbje [Gestur] Email
Jæja þá! Hvar eruð þið börnin blíð?
Ég er viss um að vera ekki ein um að opna slóðina kvölds, morgna og um miðjan daginn, dag eftir dag og nú er aðeins farið að fara um mig. Auðvitað er í lagi með ykkur og þið meira að segja létuð vita að nú yrði ekkert samband í bili.........en samt sem áður.....
Það verður mikill léttir þegar fréttir berast af ykkur næst.
Knús og kossar.
PermalinkPermalink 10.01.2007 @ 17:50
Athugasemd frá: Afa og ömmu Ingu Maríu [Gestur] Email
Þetta er sjálfsagt ofsalega gaman en verip samt ekki of glæfralegar, ekki hugsa: Það kemur ekkert fyrir mig.
Gangið hægt um gleðinnar dyr. Kveðjur til ykkar allra,
afi og amma.
PermalinkPermalink 10.01.2007 @ 19:02
Athugasemd frá: hadda frænka Ingu Maríu [Gestur] Email
Sælar stúlkur
Móðir IMÓ, auglýsir síðuna eins og
Kringlan sína útsölu, en ég held þið verðið
að fara að uppfæra hana svo maður fari ekki að hafa áhyggjur! Góða skemmtun og njótið
augnabliksins!
Kyss úr mínus átta gráðum í RVK
Hadda
PermalinkPermalink 10.01.2007 @ 20:17
Athugasemd frá: Siggumömmu [Félagi] Email
Elsku Sigurbjörg og allar hinar,voða var ég fegin að fá sms frá þér í nót.
Eg verð við tölvuna í dag og bíð eftir símtali,hlakka til að heyra í þér.
PermalinkPermalink 11.01.2007 @ 07:15
Athugasemd frá: essbje [Gestur] Email
Kæra Siggumamma!
Takk fyrir að láta vita hér. Ég hef ekkki sofið neitt sérlega vel undanfarnar nætur, því ég hélt að kæmu skilaboð frá Ciudad Bolivar og þar áttu þær að vera frá 15. degi hélt ég. Stelpur mínar, ég hlakka til að fétta af ykkur :)
PermalinkPermalink 11.01.2007 @ 08:56
Athugasemd frá: Siggumömmu [Félagi] Email
Boa tarde !
Stelpu mínar,velkomin til Brasilíu.
Vonani komist þið í símasmband fljótlega,ég verð heima eftir kl 3 í dag .
PermalinkPermalink 11.01.2007 @ 13:34
Athugasemd frá: Lóa Ingufrænka [Gestur] Email
Vona að þið skemtið ykkur vel stúlkur mínar, rakst á þessa bæn dagsins í bænabók þjóðkirkjunnar ég er jú guðfræðinemi og les mikið af svona efni... og varð hugsað til ykkar. "Drottin, ég hef beðið eftir þessu svo lengi. Þú þekkir mig og skilur mig og þær væntingar sem ég hef haft varðandi þessa ferð. Þú þekkir hve þreytt og hvíldarþurfi ég er. Hjálpa mér að taka hvern dag eins og hann kemur, forða mér frá gremju og ergelsi, hjálpa mér að hvíla í hendi þinni og forsjón elsku þinnar hvað sem að höndum ber, blessa dagana sem framundan eru og hjápa mér að treysta þér. Í nafni föður, sonar og heilags anda, Amen" úr bænabók þjóðkirkjunar, sr. Karl Sigurbjörnsson tók saman.
Bestu kveðjur og farið nú varlega í misgóðum heimi.
kær kveðja,
Lóa Ingufrænka
PermalinkPermalink 11.01.2007 @ 15:37
Athugasemd frá: Sigrún [Gestur] Email · http://www.blog.central.is/girlur
Sælar stúlkur :D
Gleðilegt ár & takk fyirr allt gamalt & gott. ;*
Jhii +eg fékk alveg í magann við að lesa um þetta stökk ykkar. :s
Vona að þið hafið það sem allra best & skemmtið ykkur frábærlega. ^^
Ástar- & saknaðarkveðjur
Sigrún (Fossvogskirkjugarði & Hagaskóla)
PermalinkPermalink 11.01.2007 @ 16:25

Comments are not allowed from anonymous visitors.

September 2010
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
<< <     
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Ævintýri í Suður-Ameríku

Sigga, Halla og Inga María á ferðalagi um Suður-Ameríku í 25 vikur

Locations of visitors to this page

Leita

Flokkar

Ýmislegt

XML Straumar

What is this?

powered by
b2evolution