Settum inn 20 nyjar myndir. Vid akvadum ad hafa taer faerri og med texta i stadinn fyrir ad hruga inn ollum i einu, thad baedi sparar okkur mikinn tima og er lika skemmtilegra ad hafa eitthvad til ad syna thegar vid komum heim :) allright
Partyid i gaer var BRJALAD :) Vid logdum okkur milli kl 20-00 og vorum maettar eiturhressar um eittleytid a barinn ad drekka Pina Coladas. Markmidid var nefnilega ad sja solarupprasina i strandpartyinu. Saum thad, en tad var svo skyjad ad himinninn vard eiginlega bara adeins bjartari smam saman. Svafum svo fra 10 i morgun til hadegis en fottudum ad thad var waste of time, forum i solbad a sundlaugarbakkanum og sidar i dag i paragliding. Ekki gott vid thynnku. Big no no.
Her sitja thrjar threyttustu stulkur Sudur-Ameriku
Goda nott
:)
Sigga, Halla og Inga Maria
haha.. haehae loksins komumst vid i tolvu, sumir voru ordnir otreyjufullir ad heyra fra okkur! en svona er tetta madur er ekki alltaf med netcafe a campsite-inu
vid erum semsagt nuna lagdar af stad i tessa triggja vikna strandferd okkar sem mun enda a rio carnival :)
sidustu stadir sem vid hofum komid a hafa verid svo frabaerir ad okkur langadi ekkert ad fara tadan, en tad er alveg otrulegt ad hver nyr stadur er betri en sa fyrri! nuna erum vid hreinlega i paradis a jord og tad eru engar ykjur, verdum her i trja daga!! tree days eins og kiddinn okkar her mundi orda tad.. haha soldid irskur sko
vid erum i litlum strandbae sem heitir canoa quebrada og tad er 4x4 festival i gangi um helgina, sem tydir ad tad er brjalad strandparty i kvold.. forum a upphitunina i gaer sem var alveg nogu geggjud :)
hotelid okkar heitir pousada california og er LOVELY!! fengum frekar stort herbergi med risaspegli og walk-in closet ooog dudurudurmmm heita sturtu!! ekki ma gleyma mini barnum og sundlauginni sem er adeins 3 metra fra hurdinni okkar :)
i ferdinni med okkur eru tviburastelpur og kaerasti annarrar teirra, lorraine, louise og gary, kaerasti lorraine. tau eru alltaf sett 3 saman i herbergi en ekki parid og louise stok. oll hin porin i ferdinni fa sitt privacy, svo vid tokum louise ad okkur og budum henni ad gista med okkur i herberginu. tad var meirasegja svefnplass fyrir 4.. hun er algjor snillingur og reyndar tau oll og tau verda med okkur alla 6 manudina :) :)
mamma, mommmur, vid erum bunar ad bjoda teim gistingu heima a islandi hvenaer sem tau vilja :p og lika krissu og kidda irsku englunum okkar
a hverjum degi undrum vid okkur a tvi hvad lifid se ljuft, thratt fyrir alla litlu kvillana sem kunna ad hrja okkur hofum vid aldrei verid hamingjusamari. ykkur til skemmtunar ma kannski koma med nokkur daemi:
moskitofluga i augad a siggu
moskitobit a augnlokid a ingu mariu
baedi fengu sykingu!
leid naestum yfir hollu a ferjunni
sigga vard sjoveik a ferjunni. ta eru hengirumin ekkert svo god
inga maria fekk matareitrun a ferjunni, hengirumin ekki snidug tar heldur
moskitoflugurnar velja bestu stadina til ad bita okkur, tar a medal handakrika, rassinn og storutana
okkur grunar taer um ad funda og plana hvar taer na sem mestum arangri med sem minnstu efforti!
en tetta alltsaman lifgar bara upp a tilveruna haha
elsku mommur, pabbar, fjolskyldur, vinir, kaerastar og gaeludyr.. VID SOKNUM YKKAR, vildum helst fa ykkur oll yfir i svona 1 dag :)
tangad til naest
vid erum farnar i solbad :p
p.s. tad er steikjandi hiti !!! haha
Sigga, Halla og Inga Maria
vid erum i stuttu stoppi her i funky town! ferjan er kosy.. alveg trodid af hengirumum og vid bunar ad kynnast einum local;)
tetta er bara mjog stutt nuna, bara ad lata vita af okkur:)
lifid a ferjunni er bara leti.is og vid liggjum bara allan daginn i hengirumunum (tad er ekki mikid um stola eda stadi til ad tylla ser). yfir hádaginn verdur rosa heitt og tá reynir madur bara ad finna mestu goluna:)
tangad til naest, kvedja frá amazonfljótinu!
sigga, halla og inga maria.
Fórum í Amazon frumskóginn snemma á föstudagsmorgunn, u.þ.þ 5 klst rútu- og bátsferðalag frá Manaus. Þar var okkur skipt upp í 8 manna hópa sem hver fékk sinn leiðsögumann, innfæddan og enskumælandi. Okkar maður hét Cobra og var pottþétt langbesti leiðsögumaðurinn, hann var algjör snillingur og var til í að sprella aðeins með okkur. Við áttum t.d. að fara í siglingu á kanóum að leita að villtum dýrum en þau voru ekki alveg ad sýna sig svo við eyddum siglingunni í að læra og syngja ýmsa söngva á portúgölsku. Munum reyndar bara einn, mjög einfaldur barnasöngur,
I la i la riê
Ôôô
I la i la riê
Ôôô
I la i la riê
Ôôô
É a turma da Xuxa
Que vai dando o seu alô!
Við fórum til Amazon á regntíma sem er nýbyrjaður og við vorum því að sigla á milli trjáa þar sem árnar eru allar búnar að flæða langt upp fyrir bakka sína. Cobra sagði okkur að yfirborðið eigi eftir að hækka um 6-7 metra í viðbót! Það var ótrúlegt að sjá inní speglaheiminn sem myndast þegar vatnið er svona stillt og maður sér ekki hvar trén enda og vatnið byrjar.
Fyrsta kvöldið fórum við drykkjuleik sem Mark (leiðtoginn okkar) kenndi okkur. Virkar þannig að allir sitja í hring og hringurinn telur uppí 21. Í hvert skipti sem einhver segir 21 þá má sú manneskja breyta einhverri tölu í orð, svo smám saman er komin saga. Sagan sem varð til var heldur skondin: Jeremy’s nipple clamp makes mark his bitch if andy makes eleven womens clits swell in bernie’s porn star weekly paddling pool party with budget expeditions.
Eins og þið sjáið er nóg af fjöri í þessum hóp;)
Við gistum öll saman í aðalcampinu en fórum svo í átta manna hópunum eina nótt útí svokallað bushcamp. Þar sem við lágum í hengirúmunum (að vanda) útí óbyggðunum varð okkur hugsað til alls þess sem við höfum ekki við höndina lengur. Það fer alveg með okkur að komast ekki í 10-11 að kaupa nammi og fá ekki íslenska matinn sem við erum vanar. Svona aðstæður kalla á örþrifaráð og í huganum fórum við í gegnum allt sem við höfðum meðferðis. Fundum saltkexmylsnu í poka sem var skipt “systurlega” á milli okkar, en svo var alvöru fjársjóður uppgötvaður! Sigga dró Trek Bar upp úr pokahorninu sem var þvílíkt lostæti!! Besta máltíð sem við höfum fengið.
Við borðuðum annars alltaf mjög innihaldsríkan og virkilega góðan mat, því þarna voru snilldarkokkar á ferð. Þegar við vorum í “bushcampinu” fengum við kvöldmat sem verður lengi í minnum hafður. Við fengum hrísgrjón og pulsur steiktar á teini, þar sem við höfðum enga diska borðuðum við af árunum úr bátnum með litlum skeiðum sem cobra og bátsmaðurinn skáru út fyrir okkur.
Lukkan eltir okkur hér eins og þið vitið. Mótorinn úr bátnum okkar eyðilagðist þarna úti og við rerum heim eins og sannir víkingar.
Í aðalcampinu fórum við nokkur saman í fótbolta sem var mikið fjör. Spiluðum á sandvelli, berfætt, með lítinn gúmmíbolta á stærð við handbolta! Við vorum duglegar að taka sundspretti í ánni og sturtuðum okkur á bikiniunumí kraftmiklu amazon rigningunni, sjampó, sápa og alles;)
Eina nóttina kúrði lítil mús í hengirúminu hennar siggu en hljóp í burtu þegar sigga fór að pota í það sem hún hélt að væri sokkur!
Nú eigum við allar hringa úr litlum kókoshnetum sem við skárum út sjálfar. Indjánarnir kenndu þeim sem vildu að gera skartgripi og fleira, og við föndruðum pöddur og fugla úr stráum eftir flóknum leiðum.
Halla er að halda uppi heiðri fjölskyldunnar og týnir eigum sínum hægri vinstri! Nú þegar er hún búin að týna 3 skópörum, veskinu með ÖLLU í, buxnaskálm og vitinu hreinlega! Allt hefur þó skilað sér aftur, við erum samt ekki alveg vissar um það síðastnefnda:s
Ótrúlegt en satt, við erum í 1,6 milljón manna borg og þó erum við alltaf að rekast á sama fólkið aftur og aftur. Við kynntumst manni á bar hérna rétt hjá sem vissi margt um ísland og svo hittum við hann aftur á rútustöðinni þegar við komum aftur úr skóginum. Svo erum við búnar að eignast tvo aðdáendur sem við hittum fyrst á pósthúsinu, næst sáum við þá á netkaffinu, þar næst á barnum og í dag útí búð og aftur úti á götu!
Í gær fórum við út á lífið, prófuðum risastórt salsapartí með 2000 manns undir berum himni og lifandi tónlist. Sigga dansaði uppá sviði með atvinnudönsurum og lærði af þeim sporin meðan inga og halla fengu kennslu frá innfæddum í moldinni fyrir neðan. Æðislegt kvöld í alla staði. Í þynnkunni í dag hresstum við okkur við með því að kaupa samskonar pils og boli og erum því orðnar trúar okkar nafni, The Terrible Threesome. Og talandi um T, við fórum í búðina til að kaupa mat fyrir ferjuna sem við förum í á morgun. Við föttuðum þegar við vorum komnar langt á leið með (T)innkaupin að í körfunni voru bara hlutir sem byrjuðu á T. tannkrem, tyggjó, tannþráður, tannbursti, tankur af vatni, tekex og tanga dömubindi! Við getum afsakað fatakaupin með því að ÖLL fötin okkar eru í þvottinum, svo við gengum um í sveittum djammfötum gærkvöldsins sem voru ekki beint hversdagsklæðnaður...
Þangað til næst, kærar kveðjur frá Manaus, Sigga, Halla og Inga María.
p.s. innilegar hamingjuóskir til afmælisbarnanna, Katharinu litlu systur og Tinnu voffa!
Hæ allir! Núna erum við komnar til Brasiliu eftir 12 daga tjalda- og hengirúmaútilegu:)
First things first, gamlárs. Brjálað partí og frábær matur og svona til að toppa þetta þá átti fararstjórinn okkar afmæli á miðnætti (p.s. til hamingju með afmælið Hildur, Árni og Rikki). Halla varð frekar veik eftir matinn og fór heim bara um hálfellefu, en við fögnuðum kl 8 okkar löndum til samlætis! Svo hún fór nú bara heim á skikkanlegum tíma (svona til að gleðja mömmu sí;)).
Morguninn eftir ad vid bloggudum sídast fórum vid frá Mérida, og á leid okkar til Los Llanos votlendisins stoppudum vid eina nótt í aedislegum bungalow-um.
Okkur var skipt nidur í nokkra kofa, por saman og einhleypum skipt eftir kynjum. Tetta voru bjálkahús med moskítónetum fyrir veggi og kojur og rúm úr heilum trjábolum. Kakkalakkar, kongulaer, edlur og froskur heimsóttu okkur, froskurinn var svo frumlegur ad koma inn í gegnum klósettskálina! Hann valdi líka fullkominn tíma thví sigga var akkúrat ad standa upp til ad girda sig. Morguninn eftir fórum vid beint til Los Llanos í bátsferd í leit ad anacondum og fleiri furdudýrum. Um nóttina sváfum vid í hengirúmum undir berum himni og bordudum piranafiska med hrísgrjónum og einhverju raudu mauki í kvoldmat. Tessi máltíd fór fram í svartamyrkri svo fólk med vasaljós gat plokkad út flugur og tilheyrandi en ekki vid frá íslandi;) neinei, bara meira prótín fyrir okkur! Lukkan eltir okkur hér, inga maría tók tvo vasaljós med sem baedi eru bilud!
Tarna vorum vid í tvaer naetur og thrjá daga, sáum 10 anacondur, fullt af iguana edlum og cayman krókódílum, bleika ferskvatnshofrunga og fjoldann allan af furdufuglum. Ekki má svo gleyma krobbunum og piranafiskunum sem voru duglegir ad hoppa um bord í bátana (vid ferdudumst um á 3 kanóum).
Vid keyrdum svo heilan dag til ad komast til Ciudad Bolívar tar sem vid tjoldudum í fyrsta sinn. Morguninn eftir var haldid eldsnemma af stad á flugvollinn til ad fara ad sjá Salto Ángel, haesti foss í heimi. Tadan flugum vid til Canaima thjódgardsins í pínulitlum fimm saeta Sessnum. Vid sigldum svo upp fljótid í fimm tíma, til týnda heimsins. Vid sváfum í hengirúmum, enn og aftur (ordnar pro hengirúmasleepers), voknudum svo kl 4 og tókum 1 og hálfs tíma gongu í nidamyrkri upp ad "fossinum". Slódinn var alsettur rótum og hindrunum og vid hofdum med okkur Eitt Aumt Vasaljós! Rosalegt aevintýri og ekki var leidin til baka verri, vid hlupum nidur á 25 mínútum, í algjoru adrenalínsjokki:)
Tessi ferd var aedisleg í alla stadi, gjorsamlega peninganna virdi, okkur fannst nú samt ekki mikid til "fossins" koma, tetta var bara aum looong spraena! Fjollin tarna eru rosaleg, risastór bordfjoll (eda tepuis) med thokuslaedu um toppinn (eins og klippt út úr Lord of the Rings).
Vid hofum alltaf vaknad rosalega snemma, thá er ég ad tala um frá 4 til 6 um nóttina, til ad leggja snemma af stad, thví vid keyrum alveg upp undir 12-14 tíma á longum akstursdogum. Um daginn fengum vid ad sofa út, logdum af stad kl 10! Hvorki meira né minna! En hvad haldid tid? Halla og Sigga voknudu kl 7 og fóru ad bada sig í ánni og teim til mikillar undrunar kom Inga María 10 mínútum sídar med bros á vor og handklaedi undir hendinni. Svei mér tá!
Vid erum sem sagt thegar ordnar gjorbreyttar manneskjur og einungis 3 vikur lidnar af ferdinni!
Í gaer keyrdum vid yfir midbaug og stoppudum tar til ad snaeda hádegisverd. Thríeykid ógurlega tók sig til og pissadi beint á midbauginn:) tegar vid áttum ad fara aftur uppí rútu tá byrjadi halla allt í einu ad taka tryllinginn (oskra, hrista sig alla og berja í eyrad). Ferdafélagar okkar skildu hvorki upp né nidur og vissu ekki hvort tetta vaeri nú enn eitt uppátaekid eda hvort hún vaeri nú alveg gengin af goflunum! Hún fann titring í eyranu en var tó ekki ad samtykkja ad tad vaeri padda í thví (halla: ég hélt bara ad hljódhimnan vaeri ad springa!). Dominique kom med tad rád ad hella vatni í eyrad og drekkja kvikindinu. Halla var sídan í hálfgerdu sjokki eftir ad hafa fundid eitthvad deyja inní sér:s (hahah tad dó eitthvad innra med mér tennan dag!) tid hefdud átt ad sjá undrunarsvipinn á henni, vildum óska ad vid hefdum fattad ad taka vidjó af tessu snilldaraugnabliki.
Í dag erum vid búnar ad ramba um baeinn (Manaus) í leit ad allskyns naudsynjavorum, s.s. sólarvorn, snakkmat, stílabók og penna, sandolum, hradbanka o.s.frv. thví á morgun forum vid í thriggja nótta amazon ferd.
Eftir erfidan dag tar sem ekkert virtist aetla ad ganga upp komum vid uppá hótel til ad borga ferdina sem er framundan. Tá hofdum vid klukkutíma til ad klára erindin fyrir fundinn med leidsogumanninum Antonio. Inga María hafdi fengid sms frá módur sinni: hvar ertu nákvaemlega, núna? Inga María, rosa snidug, svaradi: á odrum stól frá haegri, í lobby-inu á Hotel Ideal, Ruo Dos Andradas, centro Manaus, Amazonas fylki, Brasilíu.
Hún hefur greinilega sent okkur hamingju- og lukkustrauma og hitt beint í mark thví vid fundum barasta allt sem okkur vantadi og gátum samt sest nidur og drukkid einn kaldan og kynnst manni med mikinn áhuga á íslandi og sagdi ord eins og: Snorri Sturluson, Heimskringla, Snaefell og Reykjavík. Hann var himinlifandi yfir thví ad hitta fyrstu íslendingana sína:) Takk mamma!
Jaeja, eftir tessa runu turfidi líklega ad leggja ykkur, fá ykkur bjór eda sokkva ykkur í heitt bad! Tetta er nú líka 12 daga skammtur;) –Sigmundur Ernir talar frá Brazil.
Bless í bili, Sigga, Halla og Inga María:)
p.s. getur madur sagt í hittifyrradag?
| Mon | Tue | Wed | Thu | Fri | Sat | Sun |
|---|---|---|---|---|---|---|
| << < | Current | > | ||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
| 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
| 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
| 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
| 29 | 30 | 31 | ||||
Sigga, Halla og Inga María á ferðalagi um Suður-Ameríku í 25 vikur