Póstar í: January 2007, 17

17.01.2007

Permalink 01:52:45, Flokkar: Djamm, Brazil  

awsome foursome

Fórum í Amazon frumskóginn snemma á föstudagsmorgunn, u.þ.þ 5 klst rútu- og bátsferðalag frá Manaus. Þar var okkur skipt upp í 8 manna hópa sem hver fékk sinn leiðsögumann, innfæddan og enskumælandi. Okkar maður hét Cobra og var pottþétt langbesti leiðsögumaðurinn, hann var algjör snillingur og var til í að sprella aðeins með okkur. Við áttum t.d. að fara í siglingu á kanóum að leita að villtum dýrum en þau voru ekki alveg ad sýna sig svo við eyddum siglingunni í að læra og syngja ýmsa söngva á portúgölsku. Munum reyndar bara einn, mjög einfaldur barnasöngur,
I la i la riê
Ôôô
I la i la riê
Ôôô
I la i la riê
Ôôô

É a turma da Xuxa
Que vai dando o seu alô!

Við fórum til Amazon á regntíma sem er nýbyrjaður og við vorum því að sigla á milli trjáa þar sem árnar eru allar búnar að flæða langt upp fyrir bakka sína. Cobra sagði okkur að yfirborðið eigi eftir að hækka um 6-7 metra í viðbót! Það var ótrúlegt að sjá inní speglaheiminn sem myndast þegar vatnið er svona stillt og maður sér ekki hvar trén enda og vatnið byrjar.
Fyrsta kvöldið fórum við drykkjuleik sem Mark (leiðtoginn okkar) kenndi okkur. Virkar þannig að allir sitja í hring og hringurinn telur uppí 21. Í hvert skipti sem einhver segir 21 þá má sú manneskja breyta einhverri tölu í orð, svo smám saman er komin saga. Sagan sem varð til var heldur skondin: Jeremy’s nipple clamp makes mark his bitch if andy makes eleven womens clits swell in bernie’s porn star weekly paddling pool party with budget expeditions.
Eins og þið sjáið er nóg af fjöri í þessum hóp;)
Við gistum öll saman í aðalcampinu en fórum svo í átta manna hópunum eina nótt útí svokallað bushcamp. Þar sem við lágum í hengirúmunum (að vanda) útí óbyggðunum varð okkur hugsað til alls þess sem við höfum ekki við höndina lengur. Það fer alveg með okkur að komast ekki í 10-11 að kaupa nammi og fá ekki íslenska matinn sem við erum vanar. Svona aðstæður kalla á örþrifaráð og í huganum fórum við í gegnum allt sem við höfðum meðferðis. Fundum saltkexmylsnu í poka sem var skipt “systurlega” á milli okkar, en svo var alvöru fjársjóður uppgötvaður! Sigga dró Trek Bar upp úr pokahorninu sem var þvílíkt lostæti!! Besta máltíð sem við höfum fengið.
Við borðuðum annars alltaf mjög innihaldsríkan og virkilega góðan mat, því þarna voru snilldarkokkar á ferð. Þegar við vorum í “bushcampinu” fengum við kvöldmat sem verður lengi í minnum hafður. Við fengum hrísgrjón og pulsur steiktar á teini, þar sem við höfðum enga diska borðuðum við af árunum úr bátnum með litlum skeiðum sem cobra og bátsmaðurinn skáru út fyrir okkur.
Lukkan eltir okkur hér eins og þið vitið. Mótorinn úr bátnum okkar eyðilagðist þarna úti og við rerum heim eins og sannir víkingar.
Í aðalcampinu fórum við nokkur saman í fótbolta sem var mikið fjör. Spiluðum á sandvelli, berfætt, með lítinn gúmmíbolta á stærð við handbolta! Við vorum duglegar að taka sundspretti í ánni og sturtuðum okkur á bikiniunumí kraftmiklu amazon rigningunni, sjampó, sápa og alles;)
Eina nóttina kúrði lítil mús í hengirúminu hennar siggu en hljóp í burtu þegar sigga fór að pota í það sem hún hélt að væri sokkur!
Nú eigum við allar hringa úr litlum kókoshnetum sem við skárum út sjálfar. Indjánarnir kenndu þeim sem vildu að gera skartgripi og fleira, og við föndruðum pöddur og fugla úr stráum eftir flóknum leiðum.
Halla er að halda uppi heiðri fjölskyldunnar og týnir eigum sínum hægri vinstri! Nú þegar er hún búin að týna 3 skópörum, veskinu með ÖLLU í, buxnaskálm og vitinu hreinlega! Allt hefur þó skilað sér aftur, við erum samt ekki alveg vissar um það síðastnefnda:s
Ótrúlegt en satt, við erum í 1,6 milljón manna borg og þó erum við alltaf að rekast á sama fólkið aftur og aftur. Við kynntumst manni á bar hérna rétt hjá sem vissi margt um ísland og svo hittum við hann aftur á rútustöðinni þegar við komum aftur úr skóginum. Svo erum við búnar að eignast tvo aðdáendur sem við hittum fyrst á pósthúsinu, næst sáum við þá á netkaffinu, þar næst á barnum og í dag útí búð og aftur úti á götu!
Í gær fórum við út á lífið, prófuðum risastórt salsapartí með 2000 manns undir berum himni og lifandi tónlist. Sigga dansaði uppá sviði með atvinnudönsurum og lærði af þeim sporin meðan inga og halla fengu kennslu frá innfæddum í moldinni fyrir neðan. Æðislegt kvöld í alla staði. Í þynnkunni í dag hresstum við okkur við með því að kaupa samskonar pils og boli og erum því orðnar trúar okkar nafni, The Terrible Threesome. Og talandi um T, við fórum í búðina til að kaupa mat fyrir ferjuna sem við förum í á morgun. Við föttuðum þegar við vorum komnar langt á leið með (T)innkaupin að í körfunni voru bara hlutir sem byrjuðu á T. tannkrem, tyggjó, tannþráður, tannbursti, tankur af vatni, tekex og tanga dömubindi! Við getum afsakað fatakaupin með því að ÖLL fötin okkar eru í þvottinum, svo við gengum um í sveittum djammfötum gærkvöldsins sem voru ekki beint hversdagsklæðnaður...
Þangað til næst, kærar kveðjur frá Manaus, Sigga, Halla og Inga María.

p.s. innilegar hamingjuóskir til afmælisbarnanna, Katharinu litlu systur og Tinnu voffa!

January 2007
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
<< < Current > 
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Ævintýri í Suður-Ameríku

Sigga, Halla og Inga María á ferðalagi um Suður-Ameríku í 25 vikur

Locations of visitors to this page

Leita

Flokkar

Ýmislegt

XML Straumar

What is this?

powered by
b2evolution