Póstur: praia do pipa

01.02.2007

Permalink 20:56:21, Flokkar: Brazil  

praia do pipa

hae hae bara stutt blogg til ad lata heyra i okkur, erum herna i litlum turista/strandbae og filingurinn er meira eins og madur se a costa del sol heldur en s-ameriku! eintomir turistar..

samt alveg gaman, erum a tjaldsvaedi i 3 naetur. thad er mjooog heitt ad vakna kl 7 a morgnana svo vid hengdum hengirumin okkar upp i gaer og svafum i teim i nott, adeins betra. thad er svo heitt ad siminn hennar siggu bradnadi (hluti af coverinu) og gummiid a lyklunum hennar ingu mariu!

fatt ad gera annad en ad djamma og hanga a strondinni, mjog afslappandi :)

i gaer syntum vid med hofrungunum, their komu alveg upp ad strondinni og syntu i kringum okkur.. svo nalaegt ad vid gatum naestum tvi snert tha! frekar magnad.

a morgun liggur leid okkar til Olinda sem er, eftir tvi sem vid best vitum, eitthvad svipad og vid erum bunar ad vera i undanfarid. thar gistum vid a hosteli :)

skemmtid ykkur vel i 5 gradunum
muhahha ;)

Sigga, Halla og Inga María

Trackback address for this post:

http://www.suduramerika.com/htsrv/trackback.php/49

Skoðanir, Trackbacks:

Athugasemd frá: Chrissi [Gestur] Email
hah já veistu 5gráðurnar hérna eru að minnsta kosti á ÍSLANDI :)
hmm I love Denmark uu I mean Iceland ;)
skemmtið ykkur að bráðna
love Christian ;)
PermalinkPermalink 02.02.2007 @ 03:07
Athugasemd frá: essbje [Gestur] Email
Hæ kæru!
Ég er auðvitað alltaf á netinu að skoða staðina sem þið dveljið á. Mér fannst Canoa Quebrada rosa flottur staður og Pousada California virtist mjög fínt. Núna hef ég tékkað á Olina og mér finnst það æðislegur bær með öllum þessum gróðri, strönd og fallegum gömlum húsum. Sértaklega þessi stóra kirkja.......er búið að gera hana upp??
Já, við erum með ykkur í anda eins og þið sjáið og myndum gjarnan vilja koma yfir og upplifa ævintýrið í raun.
Kveðja frá Grenimel!!
PermalinkPermalink 02.02.2007 @ 12:02
Athugasemd frá: Þórey [Gestur] Email
uhu, ég sakna ykkar svo mikið :(
PermalinkPermalink 02.02.2007 @ 20:20
Athugasemd frá: Ari [Gestur]
Hey IMÓ takk fyrir gleraugnahreinsinn sem ég var að fá afhentan núna :D
PermalinkPermalink 04.02.2007 @ 20:17
Athugasemd frá: Árni [Gestur] Email
greyinn mín, er ekkert að gera nema að djamma og hanga á ströndinni??
þetta hljómar alveg hreint skelfilega en ég veit þið eruð duglegar og ráðagóðar stúlkur og hljótið að geta fundið ykkur eitthvað að dunda við. kannski ég sendi ykkur smá uppvask og kannski eina krossgátu ú séð og heyrt til að þið deyjið nú ekki úr leiðindu í þessum endalausu strandpartýum.

annars er allt að gerast og allir að dansa.
vona að þið séuð hressar og sprækar og ekki of moskítóbitnar né sólbrenndar.

ble ble
PermalinkPermalink 05.02.2007 @ 19:02
Athugasemd frá: Glói [Gestur] Email
Hæ þið allar!

Hvernig er þetta þarna....hafið þið rekist á eina sæta fyrir mig? Sendið mynd...”plís.” Ég er mjög forvitinn að fá að sjá það sem þið sjáið, ég vildi að ég gæti farið í góðan göngutúr og tekið myndir af því sem fyrir augun ber.
Það er aftur kominn kuldi, alveg gífurlegur kuldi. Kettir venjast þessu aldrei. Það er líka alveg ótrúlega þreytandi að geta ekki hafist við utandyra nema stutta stund í einu. En loftið er hreint og tært....það er nú ljósi punkturinn í þessu. Mættu vera fleiri kvikindi á ferli, allavega svona snakk fyrir okkur Míu, en á þessum árstíma verðum við einskis vör. Við fáum nú svo sem nóg að borða, það er bara skemmtilegara að elta e. a. sjálf.
Inga María ég sakna þín! Pabbi þinn er alltaf að vinna og mamma þín og Ari geta aldrei verið kyrr lengi í einu svo ég hef engan til að kúra hjá.
Mjá! mjá!
PermalinkPermalink 05.02.2007 @ 19:50
Athugasemd frá: Sigrún [Gestur] Email · http://www.blog.central.is/girlur
Synda með höfrungum....lífið leikur við ykkur :D
PermalinkPermalink 06.02.2007 @ 22:46

Comments are not allowed from anonymous visitors.

February 2012
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
<< <     
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29        

Ævintýri í Suður-Ameríku

Sigga, Halla og Inga María á ferðalagi um Suður-Ameríku í 25 vikur

Locations of visitors to this page

Leita

Flokkar

Ýmislegt

XML Straumar

What is this?

powered by
b2evolution