Póstur: [SMS Blog] Rio de Janeiro

15.02.2007

Permalink 17:46:54, Flokkar: Brazil, Rio de Janeiro  

[SMS Blog] Rio de Janeiro

Við erum komnar til Rio de Janeiro riisaborg. Geggjaðir 5 dagar framundan á lúxushóteli :)

Trackback address for this post:

http://www.suduramerika.com/htsrv/trackback.php/53

Skoðanir, Trackbacks:

Athugasemd frá: essbje [Gestur] Email
jahso!

Tríóið í Ríó (Ríó tríó) Ég sé fyrir mér sól og sælu, fullt af fólki, mikið af litum, dans og gleði.......Hér er rigning og varla maður á ferli, allavega ekki hér á Grenimelnum. Þið munið að fara varlega og drekka ekki frá ykkur allt vit. Þetta er ekki staðurinn til þess. Þarna verða öll skynfæri að vera opin, þannig er nú líka skemmtilegra að lifa lífinu, meðvitaður og mátulega forvitinn.
Sara á afmæli í dag og við erum að fara mörg saman út að borða "Við tjörnina" og síðan sennilega á Sirkus.
Knús og kossar frá okkur öllum á Melnum.
PermalinkPermalink 16.02.2007 @ 12:58
Athugasemd frá: David og felagara [Gestur] Email
Blessadar stelpur vid erum nuna komnir til rio.
Tid afsakid tofina vid erum ekki bunir ad komast
i tolvu.
Okkur list vel a ad hittast. Okkur datt i hug ad
hittast a laugardaginn ef tad hentar ykkur, ta ca
kl 19, matur og laeti.
Vid erum i ibud a Rua Julio de Castilhos 83,
ibud 601
endilega hafid samband.
kv. david,einar,fannar,halli,dadi,anna og lisa
PermalinkPermalink 16.02.2007 @ 14:37
Athugasemd frá: Árni [Gestur] Email
Rio!!!! nú fyrst er partýið að byrja....... passið ykkur á bílunum og krókodílaköllunum
PermalinkPermalink 16.02.2007 @ 20:41
Athugasemd frá: Lára Herborg [Gestur] Email
hæjj.... takk fyrir kortið hunangsbangsi. Ég er ánægð að þú skemmtir þér konunglega þarna útí heimi. Ég sakna þín svo mikið Sigurbjörg.
Þín Lára
PermalinkPermalink 18.02.2007 @ 02:04
Athugasemd frá: Essbje [Gestur] Email
WoW! Hvernig er? Eruð þið búnar að dansa mikið? Hvernig var að hitta hina ferðalangana? Hvar var Jón? Sbr. undirritað komment að ofan........Já, við á Grenimelnum erum núna farin að fylgjast með heimsreisu félaganna svo og höfum við skoðað af mikilli ánægju ferð hins tríósins um Inkastíginn að Machu Picchu. Flott thetta net :)
Við fórum á Sirkus á föstudagskvöldið og Krummi var DJ enda hávaðinn eftir því. Við dönsuðum, alltaf nóg pláss og ég var komin heim milli 5 og 6 um morguninn. Sáum þarna mjög myndarlegan breta sem er ljóshærður og bláeygður.
Núna er mánudagsmorgun og vinnuvikan byrjuð......munið eftir svoleiðis rythma??
Biðjum að heilsa öllum og munið að ganga á guðsvegum.
PermalinkPermalink 19.02.2007 @ 10:01

Comments are not allowed from anonymous visitors.

February 2012
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
<< <     
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29        

Ævintýri í Suður-Ameríku

Sigga, Halla og Inga María á ferðalagi um Suður-Ameríku í 25 vikur

Locations of visitors to this page

Leita

Flokkar

Ýmislegt

XML Straumar

What is this?

powered by
b2evolution