El Calafate var aedi, fyrsta kvoldid fòr allur hòpurinn saman ùt ad borda til ad fagna 23 àra afmaeli Robbies. Thar sem vid hofum ekkert tìmaskyn lengur og vitum aldrei hvad klukkan er, getum vid bara gert ràd fyrir thvì ad vid hofum komid frekar seint heim thà nòttina. Morguninn eftir var semsagt vakning kl 7 og farid ì joklaskodunarferd. Halla og Inga Marìa hetjur fòru à faetur med herkjum en Sigga svefnpurka gat ekki hugsad sèr ad stìga faeti fram ùr kojunni sinni og vard eftir. Thvì midur fyrir hana thar sem tetta var skemmtilegasta ferd sem Halla og Inga Marìa hafa farid ì à aevi sinni! Eda nokkurnvegin... allur hòpurinn grèt af ofund thegar thau frèttu ad Sigga hefdi àkvedid ad verda eftir og hefdu gefid margt fyrir ad vera ì hennar sporum. Fyrri hluti ferdarinnar var hreint helvìti og aelupokar voru fylltir af morgum. Ekki Ingu Marìu og Hollu samt. Theim til mikillar undrunar..
Thetta lagadist alltsaman med samloku og sùpu ì bàtsferdinni upp ad joklinum :)
Jokullinn var otrùlega flottur, thetta er staersti advancing jokull í heiminum fyrir utan thá á Sudurskautinu. Hann er jafnstór ad flatarmáli og oll Buenos Aires. Medan vid vorum tharna heyrdum vid endalausar drunur og sáum ísjaka brotna af joklinum. Mynd segir meira en thùsund ord -Setjum inn myndir af thessu vid fyrsta taekifaeri :)
À medan restin af hòpnum upplifdi thetta aevintýri átti Sigurbjorg day off. Svaf til hádegis, fór í bad, las flugdrekahlauparann og vaeldi pínu, skrifadi póstkort, lagdi sig adeins meira og tók svo pínu til. Klippti neglur og rakadi fótleggi, bar á sig body lotion og bordadi epli.
Á degi 2 í shopping spree-inu í Ushuaia keyptum vid afmaelisgjof handa Robbie. Heidblár poncho med hvìtu munstri, eins og argentìnski fàninn. Svo teiknudum vid mynd af honum á afmaeliskort, Robbie í ponchonum med raudvìnsflosku og kúrekahatt :) Hann var ekkert lítid ánaegdur med gjofina og er ennthá ad thakka okkur fyrir.
20 og hálfs árs afmaelid hennar Ingu Maríu var svo í gaer og eins og sannir Íslendingar fognudum vid thví med gódum mat og kampavíni. Halla beitti tofrum sínum í eldhúsinu og mixadi fjórar Hollusamlokur med ollu sem hugurinn girntist. Skinku, osti, eggi, pepperoni, meiri skinku, meiri osti, gommu af tómotum, lauk og sveppum, og argentínskan substitude fyrir hamborgarasósu, salsa de golf! delicious! Allt steikt upp úr smjori.. mmm
Svo fórum vid í ísbúd og keyptum líter af kúluís í desert! Súkkuladi, banana, appelsínu, lemon pie og mintu ìs. mmmm
Erum komnar til El Chalten ì joklathjòdgard. Haegt ad velja um nokkrar gongur á morgun, vid hofum ekki alveg gert upp hug okkar. Inga María aetlar ad sitja ein heima og gráta thví hún rústadi á sér hnjánum í sídasta thjódgardi. Halla og Sigga verda mogulega í letigír, thad er ein sem okkur líst ágaetlega á sem er 2 tímar og ad mestu flatlendi :) Thá náum vid kannski Ingu Maríu med líka.
kaldar kvedjur frá einum klaka til annars!
Sigga, Halla og Inga María
p.s. Sesselja, vid erum ekki alltaf fullar, thetta voru bara tvo afmaeli í rod ;)
Gòdan og blessadan daginn!
Vorum ad taka eftir tvì ad tad eru 12 dagar sìdan vid bloggudum sìdast, tìminn er bùinn ad FLJÙGA og auk tess hofum vid ekki haft adgang ad tolvu sìdustu daga.
Sìdan sìdast:
Tòkum naeturrùtu frà Buenos Aires til Puerto Madryn. Sù ferd var DAUDI. saetin voru bilud, bannad ad kùka ì klòsettid, tad sturtadi ekki, tad var enginn klòsettpappìr, loftkaelingin var stillt à frystingu, eigum vid ad halda àfram?
Hittum sìdan okkar àstkaera hòp ì Puerto Madryn, òkum sìdan til Chile à tveimur til thremur dogum med stoppum à svokolludum "bùsskompum" (tà trodum vid tjoldunum innì runna til ad hlýja okkur)...
Vid vorum sem sagt ì Torres del Paine thjòdgardinum ì 5 daga og fórum svo aftur til Argentínu. Og hér erum vid:)
Í Torres fórum vid í fjallgongu fyrstu fjóra dagana, gongurnar voru allt frá 3 til 8 tíma langar. Umhverfid var svo líkt Íslandi ad okkur fannst vid bara vera komnar heim! Vid kipptum okkur thví ekki mikid upp vid náttúruundrin sem ferdafélagar okkar héldu ekki vatni yfir. Joklar, fjoll, votn.. tid tekkid tetta;)
Sídasta daginn fórum vid (Inga María var veik í tjaldinu) svo á hestbak og tetta voru sko almennilegir hestar. Teir voru mjog viljugir og theystu med mann útum graenar grundir. Upp á fjoll og nidur aftur. hehe.
Lús. mmm... creamy!
Fengum smá heimsókn frá honum Lúsa gamla:)Á odrum degi í Torres klóradi Sigurbjorg Erla sér stanslaust í hausnum í heilan dag og skildi ekki neitt í neinu. Á endanum kom lítil padda upp úr krafsinu. Eitthvad thótti stúlkunni tetta undarlegt. Hallgerdur var fengin til ad athuga tetta mál. Og hvad haldidi? Fundum hvorki meira né minna en 20 lýs! mmm:)
Sigga hryllti sig svo í klukkutíma thví stúlkubarnid hefur aldrei fengid lús ádur. Upphófst mikid spurningaflód en á endanum róadist hún og samthykkti ad hún vaeri ekki ÓGED thó ad hún vaeri med lús. Vid gátum audvitad ekkert gert í málinu fyrr en vid kaemum aftur í sidmenninguna med apóteki og tilheyrandi. Sigga vard bara ad gera sitt besta til ad halda hárinu sínu frá.. OLLU og OLLUM -nema bílstjóranum og leidtoganum thví teir eru skollóttir bádir tveir;)
Halla fór í gegnum hárid hennar, hár fyrir hár, á hverjum degi thar til vid fengum kamb. Thá setti Sigga djúpnaeringu í hárid og plastpoka yfir og var thannig eins og geimvera í heilt kvold. Svo kembdum vid alla nitina og leifar af daudum lúsum úr. Núna erum vid búnar ad thvo oll fot og koddaver, vonandi erum vid lausar vid kvikindin fyrir fullt og allt:s
Vid erum sumsé staddar í Ushuaia á Tierra del Fuego sem er sydsti baer í heimi. Hér er nokkud kalt en vid erum búnar ad gíra okkur upp af fotum thví hér er skattfrjálst!
"Í skattfrjálsum búdum" (syngist vid Popplag í G-dúr)
Tad er engin leid ad haetta,
tad er engin leid ad haetta,
tad er engin leid ad haetta ad versla svona,
í skattfrjálsum búdum,
í skattfrjálsri búd!
Í dag aetlum vid í End of The World Museum til ad fá stimpil í vegabréfin okkar:) vííí!
Og versla meira. vííí! Hallgerdur aetlar ad fá sér úlpu, hún fékk flíspeysu, hettupeysu, belti, skó og sokka í gaer. Ingibjorg Maríanna Ólafshússdóttir MISSTI sig í gaer. Hún keypti thrjár peysur, einar buxur, tómas buxur, thorkell buxur... húfu, skó, bol, pils og svo nýja ferdatosku undir tetta allt saman! Sigurbjorg keypti einar buxur, magnús buxur, halldór buxur... belti, bol, peysu og helling af morgaesaminjagripum handa mommu. Mikid gaman og mikid gott ad versla soldid. Yljar manni alveg í tessum kulda;)
Á morgun heldur aksturinn áfram, forum aftur yfir til Chile og aftur yfir til Argentínu. Komnar med fullt af stimplum í vegabréfid:) Sannkalladir heimsborgarar.
Rio Gallegos er naesta stopp, og eftir tad El Calafate. Tar forum vid í joklaferd. Eina ástaedan fyrir thví ad vid vitum tetta er sú ad elskulegi bílstjórinn okkar var ad joina okkur hérna inná netkaffinu og uppfraeddi fáfródan almúgann;)
Bae í bili, vonandi komumst vid meira í tolvu á naestunni:)
Halla, Inga María og Lúsablesinn.
halla að reyna að segja að tannþráður sé besti tvinni sem þú getur náð þér í;)
Góðir hálsar!
núna fáiði loksins að vita hvernig við eyddum síðustu 2 vikum. pantanal var vel þess virði, moskítóflugurnar voru alls ekkert svo slæmar. við sluppum allavega ágætlega miðað við aðstæður. það er regntímabil og þá er allt á floti alls staðar, ekkert nema duddudurruu... :)
fórum á hestbak, göngutúr og spiluðum fótbolta. fótboltinn var spilaður í 40 gráðum en aðrar tómstundir voru stundaðar með vatn upp að mitti! þarna eyddum við 3 dögum og höfðum það alveg rosalega gott, meðal annars fengum við besta nætursvefn sem við höfum fengið síðan á síðasta ári! það var í lodge-inum fyrstu nóttina..
hallgerður sannaði sig enn og aftur, gleymdi gönguskónum og sandölunum, þannig að hún var bara með sína flip-flops. inga maría lánaði henni sína sandala þegar með þurfti sem fékk þá siggu sandala sem var þá í strigaskóm;) "skómeðtaka hallgerðar er sem sagt ekki uppá marga fiska" (sigga said) því hún hefur nú gert þetta áður hér í s-ameríkunni! (gleymdi gönguskóm í leigubíl á leið til amazon en því var bjargað á síðustu stundu.)
stoppuðum stutt í foz do iguazu, skruppum yfir til paraguay og keyptum nýja myndavél því sigga fær eigi nóg af græjunni þeirri;)
sáum iguazu fossana frá brasilíu og tveimur dögum seinna sáum við þá frá argentínu. þessir fossar eru suddageðveikt náttúrufyrirbæri;) þar er allt morandi í fiðrildum, þá meinum við MORANDI! þau setjast á mann mörg saman og sitja sem fastast.
svo er það aðal málið á dagskrá: Buenos Aires. Fallegasta og besta borg í öllum heiminum!!! allavega af þeim sem við höfum séð. Algjörlega búnar að dömpa Rio, hún er ekkert miðað við BA, sem er svo sannarlega blíðviðra (þó ingu maríu finnist soldið kalt -í 25°).
við erum búnar að gera samning við tvo vini okkar hérna (robbie og ollie) um að flytja hingað eftir 3 ár, þannig að christian, þú veist það þá;)
hér erum við búnar að labba um allt og skoða eins mikið og við komumst yfir, fara á fótboltaleik (þarna gerði inga maría pabba sinn stoltan;) ) keyptum okkur alvöru fótboltabúninga og allt. erum sem sagt orðnar tryggir aðdáendur River Plate, eigum skyrtuna, hálsmenið, armbandið, derhúfuna, nærbuxurnar og höfum hvatt það til sigurs gegn Arsenal FC.
á mánudaginn fórum við að sjá danssýningu upp í sveit. þarna eyddum við 6 tímum og áttum að fá kræsingar og rauðvín eins og við vildum. kræsingarnar létu nú eitthvað á sér standa því okkur var boðið uppá feitt og ógirnilegt, seigt kjöt og blóðpulsur:s vínrauður stendur þó ávallt fyrir sínu.
inga maría kynntist vini sínum Poi og hafa þau verið óaðskiljanleg síðan. sigga fann framtíðar-Ívar og halla fann sjálfa sig í poncho með kúrekahatt:D
það er þá alveg búið að þjappa hópnum ansi vel saman, öll dýrin í skóginum eru orðin vinir:)
núna ættum við að vera að tjalda einhversstaðar en í staðinn sitjum við hér á Paraguay 1283112 og notum netið ókeypis hjá frikka nýja félaga okkar. þessir gulldrengir, frikki, axel og helgi, buðu okkur gistingu þegar við loksins fundum þá síðasta kvöldið okkar hér. við höfðum hringt, sent e-mail og skilið eftir miða í hurðinni hjá þeim en ekkert virtist ganga!
við yfirgáfum sem sagt bernie okkar heittelskaða og fengum tvo aukadaga hér í buenos aires:) jeij! núna erum við að fara á plaza del mayo að sjá mæður koma saman (sem þær gera vikulega) og krefjast svara við hvarfi sona þeirra. á árunum 1976 til 1983 hurfu um 30000 ungir háskólastrákar, sem voru andstæðingar ríkisstjórnarinnar, og ekkert hefur spurst til þeirra síðan. frekar óhugnarlegt:(
en við erum dónar að vera í tölvunni þegar við erum gestir. yfir og út!
Sigga, Halla og Inga María.
bara ad láta ykkur vita ad nýjar myndir hafa verid settar inn! of treyttar til ad blogga... :) love you guys!
Sigga, Halla og Inga María
hae allir! núna aetlar halla ad segja ykkur frá tessu líka aedislega afmaeli sem hún átti:D
byrjudum ad fagna kvoldid fyrir tví 21 árs er svo merkilegt fyrir enskumaelandi fólk og ferdafélagar okkar sogdu mér ad madur yrdi ad fagna "your last night of being twenty" hehe:)
tá vorum vid enntá í bonito á tjaldstaedinu. tar sem okkar fólk fór snemma í háttinn tá heimsóttum vid naesta budget trukk sem var nýkominn. vid hofdum heyrt ad tetta vaeri partísjúkt lid og tad voru tau vaegast sagt!
vid laerdum nýjan drykkjuleik sem er kalladur the game of jíííííhaaaaa! allskonar skemmtilegar aukareglur baettust svo inní smátt og smátt og sigga var kollud "the loud icelandic girl"
tetta gaedafólk gerdu handa mér kartoflukoku (kartoflukaka er gerd tannig: tú tekur tvaer hráar kartoflur, skerd út aldur afmaelisbarnsins, kemur snyrtilega fyrir á bretti og stingur logandi eldspýtum í kartofluna).
ég slaesadi tessa ljúffengu koku nidur fyrir afmaelisgesti og allir fengu ad smakka:) -vid setjum inn myndir af tessu ollu saman vid taekifaeri.
jaeja.
afmaelisbarnid fór heldur snemma í háttinn ad mati gesta tví tad var víst verid ad spurja um mig langt eftir nóttu! ég vildi bara ekki vera eitthvad ad drepast úr tynnku á sjálfan afmaelisdaginn!
leidtoginn okkar djammadi alla nóttina og var tví frekar fullur enntá tegar hann gaf mér koku í morgunmat og allir sungu fyrir mig:) hann var tvílíkt sorry yfir tví ad turfa ad gefa mér hana um morguninn en vid vorum ad fara inní pantanal og tad hefdi verid frekar flókid ad halda henni gódri á teirri leid! (mjog erfidur vegur) vid komumst samt ad tví ad kaka í morgunmat er alls ekki svo vitlaus;)
á leidinni inní pantanal fékk ég ad ráda tónlistinni, vid spildudum geggjadan playlista sem inga gerdi (royksopp, portishead, massive attack, hot chip o.fl o.fl.).
svo gáfu stelpurnar mér gjof frá teim og andy (bílstjórinn okkar). aedisleg gjof! fékk ronaldinho bolinn, bleikan kodda, bleika derhúfu og graena flip flops med blettatígramyndum í:D:D strákur hérna sem heitir ollie, vid kollum hann óla, gaf mér líka litla gjof. tid vitid svona maríhaenur í svona útskornum litlum kossum.. ?
um kvoldid fengum vid okkur svo nokkra kalda bjóra útí pantanal og ég býsnadist yfir tví hvad ég vaeri ordin vitur og troskud;) svo var eitt svona auka:) allan daginn, frá morgunmatnum og tar til inga fór med litla fulla hollu í rúmid, voru stelpurnar ad knúsa mig og kyssa mig á kinnina frá ásgeiri:) hann neitadi ad segja til hamingju med afmaelid daginn fyrir á msn, sagdi ad tad vaeri "taken care of" heheh... :) takk fyrir aedislega afmaeliskvedju ásgeir:D jaeja... var tad eitthvad fleira sem tid turfid ad vita? takk fyrir allar kvedjurnar hérna á blogginu:) svo fékk ég líka kort sem allir voru búnir ad skrifa í og leidtoginn okkar valdi tad sérstaklega, tad var eins og íslenski fáninn! :D:D
yfir og út,
Halla (sem veit núna eitthvad adeins meira en inga maría og sigga;))
| Mon | Tue | Wed | Thu | Fri | Sat | Sun |
|---|---|---|---|---|---|---|
| << < | Current | > | ||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | |
Sigga, Halla og Inga María á ferðalagi um Suður-Ameríku í 25 vikur