halla að reyna að segja að tannþráður sé besti tvinni sem þú getur náð þér í;)
Góðir hálsar!
núna fáiði loksins að vita hvernig við eyddum síðustu 2 vikum. pantanal var vel þess virði, moskítóflugurnar voru alls ekkert svo slæmar. við sluppum allavega ágætlega miðað við aðstæður. það er regntímabil og þá er allt á floti alls staðar, ekkert nema duddudurruu... :)
fórum á hestbak, göngutúr og spiluðum fótbolta. fótboltinn var spilaður í 40 gráðum en aðrar tómstundir voru stundaðar með vatn upp að mitti! þarna eyddum við 3 dögum og höfðum það alveg rosalega gott, meðal annars fengum við besta nætursvefn sem við höfum fengið síðan á síðasta ári! það var í lodge-inum fyrstu nóttina..
hallgerður sannaði sig enn og aftur, gleymdi gönguskónum og sandölunum, þannig að hún var bara með sína flip-flops. inga maría lánaði henni sína sandala þegar með þurfti sem fékk þá siggu sandala sem var þá í strigaskóm;) "skómeðtaka hallgerðar er sem sagt ekki uppá marga fiska" (sigga said) því hún hefur nú gert þetta áður hér í s-ameríkunni! (gleymdi gönguskóm í leigubíl á leið til amazon en því var bjargað á síðustu stundu.)
stoppuðum stutt í foz do iguazu, skruppum yfir til paraguay og keyptum nýja myndavél því sigga fær eigi nóg af græjunni þeirri;)
sáum iguazu fossana frá brasilíu og tveimur dögum seinna sáum við þá frá argentínu. þessir fossar eru suddageðveikt náttúrufyrirbæri;) þar er allt morandi í fiðrildum, þá meinum við MORANDI! þau setjast á mann mörg saman og sitja sem fastast.
svo er það aðal málið á dagskrá: Buenos Aires. Fallegasta og besta borg í öllum heiminum!!! allavega af þeim sem við höfum séð. Algjörlega búnar að dömpa Rio, hún er ekkert miðað við BA, sem er svo sannarlega blíðviðra (þó ingu maríu finnist soldið kalt -í 25°).
við erum búnar að gera samning við tvo vini okkar hérna (robbie og ollie) um að flytja hingað eftir 3 ár, þannig að christian, þú veist það þá;)
hér erum við búnar að labba um allt og skoða eins mikið og við komumst yfir, fara á fótboltaleik (þarna gerði inga maría pabba sinn stoltan;) ) keyptum okkur alvöru fótboltabúninga og allt. erum sem sagt orðnar tryggir aðdáendur River Plate, eigum skyrtuna, hálsmenið, armbandið, derhúfuna, nærbuxurnar og höfum hvatt það til sigurs gegn Arsenal FC.
á mánudaginn fórum við að sjá danssýningu upp í sveit. þarna eyddum við 6 tímum og áttum að fá kræsingar og rauðvín eins og við vildum. kræsingarnar létu nú eitthvað á sér standa því okkur var boðið uppá feitt og ógirnilegt, seigt kjöt og blóðpulsur:s vínrauður stendur þó ávallt fyrir sínu.
inga maría kynntist vini sínum Poi og hafa þau verið óaðskiljanleg síðan. sigga fann framtíðar-Ívar og halla fann sjálfa sig í poncho með kúrekahatt:D
það er þá alveg búið að þjappa hópnum ansi vel saman, öll dýrin í skóginum eru orðin vinir:)
núna ættum við að vera að tjalda einhversstaðar en í staðinn sitjum við hér á Paraguay 1283112 og notum netið ókeypis hjá frikka nýja félaga okkar. þessir gulldrengir, frikki, axel og helgi, buðu okkur gistingu þegar við loksins fundum þá síðasta kvöldið okkar hér. við höfðum hringt, sent e-mail og skilið eftir miða í hurðinni hjá þeim en ekkert virtist ganga!
við yfirgáfum sem sagt bernie okkar heittelskaða og fengum tvo aukadaga hér í buenos aires:) jeij! núna erum við að fara á plaza del mayo að sjá mæður koma saman (sem þær gera vikulega) og krefjast svara við hvarfi sona þeirra. á árunum 1976 til 1983 hurfu um 30000 ungir háskólastrákar, sem voru andstæðingar ríkisstjórnarinnar, og ekkert hefur spurst til þeirra síðan. frekar óhugnarlegt:(
en við erum dónar að vera í tölvunni þegar við erum gestir. yfir og út!
Sigga, Halla og Inga María.
http://www.suduramerika.com/htsrv/trackback.php/60
Comments are not allowed from anonymous visitors.
| Mon | Tue | Wed | Thu | Fri | Sat | Sun |
|---|---|---|---|---|---|---|
| << < | ||||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | ||||
Sigga, Halla og Inga María á ferðalagi um Suður-Ameríku í 25 vikur