Póstur: Potosi

24.04.2007

Permalink 01:22:54, Flokkar: Bolivia  

Potosi

haehae:) smá stutt svona til ad láta ykkur vita ad vid erum búnar ad setja inn slatta af myndum..! og ad vid erum í Potosi, Bólivíu. Hér er allt mjog mikid odruvísi, fólkid hérna er odruvísi útlítandi, allt frekar fátaeklegt og MJOG ódýrt.
Vid erum í haest stadsettu borg í heimi og loftid er mjog thunnt, gerir manni svolítid erfitt fyrir. Vid getum til daemis ekki gengid upp brekku í meira en 5 metra (engar ýkjur) án thess ad verda módar, madur er eiginlega stanslaust módur thví tad er bara varla neitt súrefni! Vid drekkum endalaust af vatni og tyggjum kókalauf, thannig vid erum líka alltaf á klósettinu. Núna drekkum vid minnst svona 3 lítra á dag..!
Gód fyrirmynd fyrir eskimo models;) hehe..

Fyrst vid erum byrjadar á thessu tá getum vid alveg farid adeins dýpra í thetta... fólkid hérna er meira graenlenskt í útliti en nokkud annad. Konurnar eru flestallar med tvaer langar fléttur nidur eftir oxlunum og hatta. Taer eru í risastórum pilsum, med sjol og med bornin sín (eda einhverja hluti!) bundin utan á sig í ábreidum. Taer eru EKKI hrifnar af túristum og hvad tá myndatokum, tannig ad vid eigum bara nokkrar laumumyndir.. ;)
Karlmennirnir eru langt frá thví myndarlegir og med hár nidrad eyrum, skipt í midju takk fyrir. Alveg hreint yndislegt:) Bornin eru samt thvílíkt saet, skiljum ekki hvernig thessar litlu saetu bollur verda ad svona ómyndarlegum monnum:s en svona getur thetta verid..

jaeja, vid viljum sídan bara segja ykkur hvad okkur thykir vaent um ad fá komment. Einu sinni var alltaf verid ad reka á eftir okkur ad blogga.. :$ Vid viljum líka vita hvada áhrif bloggid hefur á ykkur:)

love you guys! smá altitude sickness kvedja frá Potosi.. eda Toposi??

Sigga, Halla og Inga María.

Trackback address for this post:

http://www.suduramerika.com/htsrv/trackback.php/70

Skoðanir, Trackbacks:

Athugasemd frá: Essbje [Gestur] Email
Hola!

Auðvitað er alltaf gaman að lesa bloggið ykkar og sérstaklega þetta frá Potosi. Hér fáum við mannlýsingar og n. b. engin skrif um djamm eða þynnku sem gleður mig ákaflega. Oft má satt nefnilega kyrrt liggja. Að vísu hafa oft komið skemmtilegar lýsingar í blogginu hjá ykkur eins og síðast þegar þið voruð í bæjarferð og sáuð t. d. konuna sem var svo sexy o. s. frv.
Mér finnst þið mjög duglegar að halda úti bloggsíðu og setja inn myndir og ég veit að miklu fleiri lesa þetta en þið haldið. Af hverju kommenta ekki fleiri vinir ykkar hér? Ég hef orðið vör við nokkra þeirra en ég skora á restina að kvitta eftir lesturinn. Ég geri mer allavega alveg grein fyrir því að það er eins og að fá kort að heiman að fá komment hér inn.
Knús og kossar :)
PermalinkPermalink 24.04.2007 @ 12:19
Athugasemd frá: Ole [Gestur] Email
Íslendingar eru snillingar. Sumardagurinn fyrsti um miðjan vetur. Annars má segja að vorið hafi komið í dag. Gott veður. Hér eru kosningar á næsta leiti og allir fréttatímar uppfullir af pólitík. Ekkert nýtt sem sagt. Heyrði einu sinni þá útskýringu á höttum kvennanna að það hafi fyrir löngu komið mjög stór sending af karlmannshöttum til Bolivíu en í of litlum númerum og þá hafi konurnar bara byrjað að nota hattana. skemmtilegt blogg - Góða skemmtum.
PermalinkPermalink 24.04.2007 @ 12:54
Athugasemd frá: Eva Björk [Gestur] Email
Hææ stelpur alltaf gaman að lesa bloggið ykkar :) kíki alltaf reglulega en kommenta alldrei, en ég er með fréttir handa þér Sigga :D Unnur og Goggi fengu lítinn strák í morgun um 7 leitið! 16 merkur og 53 cm Læt þig vita um leið og koma einhverjar myndir á netið ;)
PermalinkPermalink 24.04.2007 @ 22:45
Athugasemd frá: Ingunn Sif [Gestur] Email
Hæ hæ
Sama hér - kíki oft en kommenta aldrei:)
Það er allavega mjög skemmtilegt að fylgjast með ykkur, greinilega mjög vel heppnuð ferð!!
Kær kveðja frá klakanum;)
PermalinkPermalink 24.04.2007 @ 23:27
Athugasemd frá: Rikki [Gestur] Email
Hæ hó, það er alltaf gaman að lesa bloggið frá ykkur, og sérstaklega gott að heyra frá þér Sigga systir mín.

Kókalauf já ? Ha, getið þið ekki komið með smá afleggjara handa mér.. Bara kippa með 2cm greinarstubbi eða jafnvel fá fræ hjá infæddum. Ég er alveg viss um að þið fáið nóg af fræjum þarna til að borða með morgunkorninu í viku, fyrir 2 dollara :)

Annars er ég að rækta 'catnip' úti á svölum hjá okkur. Það er svona kattardóp fyrir Tarzan og Sif. Þau fá sko ekki Kókalauf hérna haha :)

Hérna Í parís er kominn 30°c hiti í forsælu og svækjan er alla að drepa. Þetta er full brutal fyrir fólk svona í Apríl.

Halli er kominn til Neskaupstaðar og svo kemur Barbara með strákana hingað í næsta mánuði áður en þau fara saman 'heim' til Íslands. (Halli kemur hérna líka til að hitta þau)

Við biðjum að heilsa öllum ..

- Rikki
PermalinkPermalink 25.04.2007 @ 14:39
Athugasemd frá: Ingó frændi [Gestur] Email
Alltaf gaman að lesa um ykkur dúllurnar mínar. Ég er nú nokkuð aktívur að kommenta. Enda veit ég hvers virði það er að fá komment :D
Já og takk fyrir myndirnar líka.
Svo vill ég nú bara fara að fá litlu frænku heim svo hún geti bara sagt mér af svaðilförum sínum í eigin persónu.
En það fer nú að styttast í það :D
PermalinkPermalink 27.04.2007 @ 00:49
Athugasemd frá: Thórný [Gestur] Email · http://www.thornylinda.blogspot.com
Saelar skvísur, ég verd nú ad standa vid mitt og kommenta. Thad var svo skemmtilegtad hitta ykkur svona óvaent í gerkvöldi...fEinu íslendingarnir sem ég hef hitt á ferdalagi mínu sídustu fjóra mánudi!! Mér hefur aldrei ádur fundist jafn undarlegt ad heyra og tala íslensku. Ég vona ad tid haldid áfram ad skemmta ykkur á ferdalaginu og njóta lífsins.Thetta verdur örugglega ein mesta lífsreynsla sem thid munid fá á aevi ykka svo thad er eins gott ad njóta thess á medan thad varir! Bestu kvedjur frá Sucre...Thórný
PermalinkPermalink 27.04.2007 @ 04:54
Athugasemd frá: Bönga [Gestur] Email
Halló elsku heimsfarar!
Hef verið á leiðinni að skrifa hérna til ykkar og til hennar Afródítu systur minnar nokkuð lengi en alltaf eitthvað puð og streð fyrir salt í grautinn komið á milli. Jú, vildi bara segja að ég er mikill aðdáandi bloggsins ykkar og les það reglulega þó ég sé aftur á móti afar slöpp að senda inn komment. Ussufuss, já ég veit og engar afsakanir duga. En semsagt, mér finnst þið frábærir pennar og er oft í hláturskasti yfir yndislegum lýsingum af mannlífi og upplifunum í suðurhöfum. T.d bara í síðustu færslu sem var að venju hrein snilld, þótti mér sérstaklega skemmtilegar og athyglisverðar útlitslýsingarnar á innfæddum og þá einkum og sérílagi þetta með að karlmennirnir allir hafi hárið skipt í
miðju!!! Bara hrein náttúrubörn einsog þið þríeykið undrast annað eins háttalag og hárgreiðslur!! já bloggið ykkar er ferskur gustur á á heimsvefnum þar sem annars fátt kemur lengur á óvart. Liggur við að ég vilji hafa ykkur þarna sem lengst....en þið getið kannski haldið áfram að blogga hvar sem þið eruð staddar?

massa kramar,
bönga.
PermalinkPermalink 28.04.2007 @ 13:19
Athugasemd frá: Gunnu [Gestur] Email · http://www.myspace.com/girnd
hæ babes kvitt kvitt elska að lesa ykkur, dauðlangar að skella mér í svona ferð einhvertíman en það verður líklega að bíða þangað til ég verð gömul, jahh eða guttinn orðinn nógu stór til að hafa gaman af svona.... hvað gera kókalauf fyrir mann??
PermalinkPermalink 28.04.2007 @ 21:34
Athugasemd frá: Vala Dóra [Gestur] Email
Hæ Inga María!
Gaman að fylgjast með ykkur :)
Vala
PermalinkPermalink 01.05.2007 @ 00:16
Athugasemd frá: Friðrik [Gestur] Email · http://www.blidvidra.blogspot.com
Við hér í Argentínu lítum á fólk frá Bólivíu sem ódýrt vinnuafl.

bestu kveðjur
Frá Paraguay milljón og eitthvað
PermalinkPermalink 01.05.2007 @ 05:30
Athugasemd frá: Sigrún [Gestur] Email · http://www.123.is/cuzco
Sælar dömur. Við erum reyndar farin frá Cusco núna, erum bara svo léleg að blogga, en við verðum hér við ströndina í rólegheitum þar til 21. maí ef þið komið í þessa áttina. Erum núna í Pisco og förum til Ica seinna í dag. Getur annars verið að þetta sé Inga sem var með mér í MH?
PermalinkPermalink 01.05.2007 @ 17:46

Comments are not allowed from anonymous visitors.

February 2012
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
<< <     
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29        

Ævintýri í Suður-Ameríku

Sigga, Halla og Inga María á ferðalagi um Suður-Ameríku í 25 vikur

Locations of visitors to this page

Leita

Flokkar

Ýmislegt

XML Straumar

What is this?

powered by
b2evolution