Póstur: kosningar?

10.05.2007

Permalink 06:10:44, Flokkar: Peru  

kosningar?

Allt ad verda vitlaust fyrir kosningarnar à klakanum?
Vid erum nù ekki med betra tìmaskyn en thad ad vid gerdum okkur ekki grein fyrir thvì ad vid thyrftum ad kjòsa fyrr en tja.. fyrir nokkrum dogum, thegar fòlk fòr ad tala um thad ì kommentunum!
Og thad vill einmitt svo illa til ad madur tharf ad vera staddur ì hofudborg hèr à slòdum til ad geta greitt sitt atkvaedi utankjorstadar. Sem vid erum ekki.
Ég vildi thvì bara koma thvì à framfaeri ad ef einhver hefur ekki skodun à hvert hans atkvaedi à ad fara (nù verdur allt vitlaust..jaeja) thà mà hann gjarnan kjòsa fyrir mìna hond ìslandshreyfinguna x-I!

Annars er thad helst ì frèttum ad èg er komin aftur til cusco, hàlfnud med Lares trekkid upp ad Macchu Piccu. Andy vinur okkar var nefnilega svo òheppinn ad okklabrottna ì morgun, efst uppi à fjalli ì 5000 metra haed. Enginn sèns ad fà thyrlu svo vid bjuggum til heimalagadar borur undir stjòrn Meg "fyrstu hjàlpar ì òbyggdum"-meistara! òja, allt er haegt ef viljinn er fyrir hendi.. um thad bil 10 tìmum sìdar vorum vid komin nidur à jafnsléttu thar sem sjùkrabìll beid okkar.
Ákvedid var ad ég fylgdi honum á sjúkrahúsid svo vid tòk tveggja tíma akstur á vaegast sagt hrikalegum vegi, og sjúkralidarnir voru ekki einu sinni med spelkur til ad skorda hann til. Toludu heldur enga ensku, ég nádi ad útskýra furdu margt med minni pocito spaensku, hann fékk verkjatoflur og svona en greyid madurinn var naer dauda en lífi á leidinni.

Jaherna.. ég er búin med orkuskammtinn í dag, alveg magnad samt hvad ponnukokur í morgunmat endast lengi!

Farin í langtrháda sturtu og rúm,
kjósid rétt

Sigga

p.s. til hamingju med afmaelin pabbi og Ívar

Trackback address for this post:

http://www.suduramerika.com/htsrv/trackback.php/73

Skoðanir, Trackbacks:

Athugasemd frá: Ole [Gestur] Email
Uffff-aumingja Andy. Skilid kvedju til hans frá króniskum ökkla-aumingja og þjáningjabróður. Já nú er Eurovision- og kosningarhelgi á klakanun og trén byrjuð að grænka. Kv. Óli
PermalinkPermalink 10.05.2007 @ 14:17
Athugasemd frá: Essbje [Gestur] Email
Óóóheppinn hann vinur ykkar!! Vonandi fær hann góða umönnun og fínar spelkur, ef ekki bara gips!!
Er staðan þá þannig að þú klárar ekki gönguferðina? Geturðu þá farið með lest uppeftir og hitt hina úr hópnum + séð týndu borgina??........það ætla ég rétt að vona.
Leiðinlegt að þið skylduð ekki kjósa í La Paz. Hún Þórey vinkona ykkar var löngu búin að biðja ykkur að gera ráðstafanir og Íslandshreyfingin hefði nú getað notað atkvæðið þitt. En það verða kostningar aftur og aftur og þið eruð eðlilega ekki í kostningagír þarna hinum megin á hnettinum.
Takk fyrir bloggið og knúsið hver aðra frá mér :)
PermalinkPermalink 10.05.2007 @ 14:24
Athugasemd frá: Siggumömmu [Gestur] Email
Hæ hæ
Sigurbjörg ég er stolt af þér,það hefur vonandi komið sér vel námskeiðið hjá slysavaranaskólanum í Sæbjörgu og að vera í björgunarsvetinni í Moso,allt í lagi að fórna sér svolítið fyrir aðra þó að þú missir af einhverju skemmtilegu,vonandi jafnar Andy sig flótlega,ég skal kjósa rétt,
bestu kveðjur og knús til ykkar allra
Siggumamma
PermalinkPermalink 10.05.2007 @ 16:07
Athugasemd frá: Salka [Gestur] Email · http://blog.central.is/mundilfari
Þetta minnir mig á bekkjarferðalag sem við Sigga fórum í í 10.bekk. Einn samnemandi okkar var einmitt svo óheppinn að ökklabrotna uppá fjalli og hver annar en Sigurbjörg Erla hljóp á næsta bæ, sótti börur, upp fjallið á ný og bar síðan sjúklinginn niður og í næsta sjúkraskála?? ;) Lifesaver!
PermalinkPermalink 10.05.2007 @ 16:44
Athugasemd frá: Siggupabba [Félagi] Email
Það kemur upp í hugann ákveðin mynd við lestur þessa bloggs, Sigurbjörg er alltaf tilbúin til að hjálpa og kunnáttan er fyrir hendi. Hún hefur oft lagt á sig stranga þjálfun og farið á mörg námskeið til þess að vera vel undirbúin við hinar ýmsu aðstæður, en myndin sem kom upp í huga minn er einmitt tengd einu slíku námskeiði. Sextán ára gömul fór hún á eitt slíkt og þurfti þá meðal annars að fara í reykköfun í fullum herklæðum (les. eldvarnarbúning af fullvöxnum slökkviliðsmanni) og bjarga dúkku úr brennandi skipi. Hún sat fullbúin á bekk, með þungan loftkútinn á bakinu og grímuna fyrir andlitini og beið eftir því að eldurinn magnaðist nægjanlega svo aðstæður yrðu sem eðlilegastar. Þá fór þyngdaraflið að stríða henni (hún var jú soddan smá písl þá) og á endanum lá hún spriklandi á bakinu þar til karlarnir sem hún var með á námskeiðinu reistu hana við, en að sjálfsögðu fór hún svo og bjargaði dúkkinni :-)
Bestu kveðjur til ykkar allra.
Siggupabbi
PermalinkPermalink 10.05.2007 @ 17:26
Athugasemd frá: Grenimel [Gestur] Email
Jæja stelpur!

Í dag er nákvæmlega mánuður þangað til þið komið heim.........vei! Alla vega Inga María okkar, en hvað þið hinar tvær eruð með í plönunum vitum við að vísu ekki.
Kristófer á afmæli í dag og er 2ja ára.
Listahátið er í Reykjavík og um borgina gekk risi berserksgang og rústaði marga bíla í miðbænum. Dóttir risans svaf uppi á Hljómskálanum og vaknaði upp úr klukkan tíu í morgun. Hún gekk eftir Fríkirkjuveginum og niður á Austurvöll, að hafnarbakkanum og upp að Hallgrímskirkju. Hún er átta metrar á hæð en afar fríð. Á morgun fer hún í sturtu á hafnarbakkanum áður en hún fer og reynir að róa risapabba niður. Inga María þú færð ótal myndir af þessum gjörningi í pósti.
Sigga mín, ég var einmitt að segja frá dugnaði þínum í Hagaskóla og það er meira en að segja það að ganga niður 5000 metra með börur. Björgunarsveitapía :)
Hafið það sem allra best!!!!

P.s........KOSNINGAR ekki kostningar....þetta er bara farið að kosta svo mikið........
PermalinkPermalink 11.05.2007 @ 22:28
Athugasemd frá: Sigga [Gestur] Email
hey hey allar komnar aftur heilar à hùfi, jù èg tòk bara taxa daginn eftir til Ollantaitambo og thadan fòrum vid til Machu Picchu sem var alveg magnad..

Andy brotnadi à 2 stodum og gekk undir adgerd ì gaer.. thetta var vìst mjog slaemt brot.

Pabbi èg bjargadi dùkkunni en hausinn vard eftir ì stiganum! hehe..

Bloggum ì dag eda à morgun og setjum inn myndir.. thad sem vid thurfum akkurat nùna er fòtsnyrting eftir alla thessa gonguskòanotkun ullabjakk :)
PermalinkPermalink 12.05.2007 @ 20:13
Athugasemd frá: Siggupabba [Félagi] Email
Var að koma frá "Ollantaytambo, Cusco, Peru". Skrapp þangað með hjálp Google Earth (í þrívídd!).
Þetta er ótrúlega stórbrotið landslag! Það liggur við að mann svimi bara við það eitt að svipast um þarna á milli fjallanna.
Kveðjur
Siggupabbi
PermalinkPermalink 12.05.2007 @ 21:48
Athugasemd frá: sigga [Félagi] Email · http://www.sigurbj.org/
jà fjollin eru klikkud.. Hollu leid eins og hùn vaeri ì tolvuleik allan tìmann :)

og sesselja, thad eru vìst 2 mànudir thar til vid komum heim.. lídur samt fáránlega hratt, amk hérna megin :)
PermalinkPermalink 12.05.2007 @ 22:57
Athugasemd frá: Grenimel [Gestur] Email
Ææææiii.....já já, ég vissi það alveg en ruglaðist bara smá. Tíminn líður fljótt hjá ykkur og þið eruð að upplifa mikið, tíminn líður líka fljótt hjá okkur vegna þess að vikurnar eru frekar keimlíkar og renna saman :)
PermalinkPermalink 13.05.2007 @ 04:38

Comments are not allowed from anonymous visitors.

September 2010
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
<< <     
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Ævintýri í Suður-Ameríku

Sigga, Halla og Inga María á ferðalagi um Suður-Ameríku í 25 vikur

Locations of visitors to this page

Leita

Flokkar

Ýmislegt

XML Straumar

What is this?

powered by
b2evolution