Heil og sael!!
Thá er loksins kominn tími á bloggfaerslu.. hofum ekki haft lausa stund til ad fara á netid sídustu daga:)
Thid sem hafid skodad myndirnar hafid eflaust tekid eftir tví ad vid fórum til Titikaka vatns thar sem vid heimsóttum eyjaskeggja og gistum hjá theim yfir nótt. Til ad afla aukatekna eru flestallir íbúar eyjarinnar Amantani med aukaherbergi í húsinu sínu. Their skiptast svo á ad taka túrista í gistingu, gefa theim kvoldmat og morgunmat, thjónusta thá á allan hátt og klaeda thá upp í hefdbundin fot og fara med á dansleik um kvoldid. Eins og thid getid ímyndad ykkur var thetta ólýsanleg upplifun og eitthvad sem vid munum muna eftir alla aevi. Á Titikaka vatni heimsóttum vid líka eyjuna Taquile (sem státar af tví ad vera eina hundalausa eyjan á vatninu!!), gengum um hana og fengum kennslu í klaedaburdi eyjaskeggja. Til daemis eru einhleypir menn med einskonar skotthúfur med hvítu skotti en their giftu med marglitar húfur. Jómfrúr bera svo húfur sem minna á blóm. Á Taquile fengum vid fisk í hádegismat. Fiskur thessi er adalfaeda íbúa eyjanna thar sem mikid er af honum í vatninu. Enska heitid á honum er trout..hvad er thad á íslensku? Á Amantani spiludu trukklimir fótbolta vid innfaedda og var mjótt á munum. Lofthaedin var hinsvegar ekki á okkar bandi og unnu innfaeddir í aesispennandi brádabana vegna thess ad of dimmt var ordid til ad sjá boltann:)
Seinni daginn á vatninu heimsóttum vid hinar fljótandi Uros eyjur. Thaer eru gerdar úr sefi sem vex í vatninu og endist hver theirra í 12-14 ár. Thar fengum vid ad bragda á sefinu (sem er samt ekki mikid bragd af) sem er mjog kalkríkt og ástaedan fyrir tví ad Uros fólkid er med jafn gódar tennur og raun ber vitni.. tad eru nefnilega engir tannlaeknar á eyjunum og var okkur stranglega bannad ad gefa krokkunum thar nammi. Uros fólkid fór ad búa til thessar eyjar og lifa á theim til ad flýja inkana sem rédu ollu á meginlandinu. Núna snýst allt tharna um túrisma, allir med bása ad reyna ad selja handverk sín, en samt gaman ad sjá thetta:)
Eftir ad hafa heimsótt Titikaka lá leid okkar beint til Cusco og Machu Picchu. Ádur en vid byrjudum Lares Trekkid vórum vid til hins helga dals, eda Sacred Valley, ad skoda rústir og laera um sogu inkanna. Thar, uppi á Ollantaytambo rústunum, hittum vid íslenskt par! Thau Elmar Geir og Bergthóra hafa verid ad ferdast um heiminn í nokkra mánudi og vorum vid fyrstu Íslendingarnir sem thau hitta! Voru ad vonum fagnadarfundir og ákvádum vid ad hittast um kvoldid á írska barnum í Cusco, thegar vid hofdum bladrad svo lengi ad hópurinn okkar var longu farinn á undan okkur og leidsogumadurinn thurfti ad koma tilbaka ad saekja okkur. Til gamans má geta ad Íslendingar thessir eru vinir Thórnýjar sem vid hittum í Sucre.. svona erum vid lítil thjód!
Tveimur dogum sídar hófst svo Lares gangan okkar. Byrjudum á ad kaupa kókalauf og braud á lókal markadi til ad gefa fólki sem yrdi á vegi okkar. Thad á ad gefa bornum braud ad bíta í á fjollunum... og gamla fólkid fékk kókalaufin:) Fyrsta daginn endadi gangan í 4200 m haed thar sem vid tjoldudum og dóum naestum úr kulda!! Í alvoru, thad SNJÓADI THARNA!!! Leidsogumadurinn okkar sagdi okkur ad hann hefdi aldrei gengid tharna í snjó ádur og var hann heldur smeikur um ad einhver okkar rynni til og dytti (sem vard svo raunin, en ekki fyrr en vid vorum komin nidur úr snjónum..) Dagur tvo átti ad vera sá erfidasti thar sem klifrad var upp á fjallstopp í 5000 m haed, en vid prinsessurnar áttum rád vid thví og leigdum okkur bara hesta upp erfidasta hjallann;) Svo hélt gangan langa áfram í snjónum og thví sem átti ad vera stórfenglegu útsýni, en vid fengum bara stórhríd og thoku.. Loksins thegar vid komum nidur úr snjónum, vedrid ordid gott og thokunni ad létta, thá tekst Andy ad detta og svoleidis molbrjóta á sér okklann. Hann braut víst baedi beinin og var í adgerd í 4 klst. greyid.. en honum lídur betur núna, útskrifast eftir 3-4 daga af spítalanum og flýgur heim til Englands eins fljótt og haegt er:) Nú var eins gott ad Team Iceland sparadi orkuna thví thad var ekkert annad til ráda en ad búa til sjúkraborur úr tjaldstongum og ponchoum, bundnum saman med treflum, og bera aumingja manninn nidur. Tólf manns skiptust á ad bera manninn og hinir fimm báru alla bakpokana og farangurinn. Burdarmennirnir komu svo seint og um sídir og tóku vid af hópnum.. flestir fóru beint heim í brádabirgdartjaldstaedid sem gert var fyrir okkur í thví sem hefdi átt ad vera hádegisstoppid en Sigga, Meg, Lars og Pat urdu eftir og hjálpudu til vid ad bera Andy alla leid nidur í baeinn thar sem sjúkrabíll beid hans. Eins og thid vitid fór Sigga svo med Andy á spítalann. Restin af hópnum gekk til Ollantaytambo daginn eftir thar sem vid hittum Siggu aftur og lest var tekin til Machu Picchu. Thar sem vid hofdum tafist um átta klst. vegna meidsla Andys klárudum vid ekki gonguna sem slíka heldur gengum stystu leid í baeinn eftir veginum. Oll gangan er um 50 km long en aelti vid hofum ekki gengid um 40 km.
Machu Picchu er aedi! Alveg suddagedveik! Nei ad ollu gamni slepptu thá er ekki haegt ad lýsa thessu.. setjum inn myndir brádlega en thad er samt ekki thad sama, thid verdid bara ad fara thangad sjálf;) Vid komum thangad klukkan sjo ad morgni í austfjardathoku, sáum ekki handa okkar skil, en thad var aevintýralegt ad sjá thegar létti til og borgin birtist fyrir augum okkar. Vid gengum upp ad Sólarhlidinu en thar sem Inga María var veik (aeldi fimm sinnum í eins og hálfs tíma lestarferd.. geri adrir betur!!) slepptum vid thví ad fara upp Wayna Picchu fjallid, gerum thad bara naest;)
Thegar vid komum til baka (tvíbaka, flatbaka...haha) til Cusco hittum vid ANNAN Íslending!! Thad er greinilegt ad vid erum komnar til thess hluta Sudur-Ameríku sem flestir ferdast um! Hann heitir Arnar og býr hérna í Cusco, er ad laera spaensku og fer svo í sjálfbodastarf sídar meir. Hann er líka náfraendi Rakelar vinkonu okkar:) Thar áttum vid tvo daga sem Hallgerdur og Sigurbjorg eyddu á borunum en Inga María í rúminu.. lasin, ekki ad skemmta sér. Mamma.
Núna erum vid staddar í baenum/borginni Arequipa í 2600 m haed, loksins komnar úr thessu helvítis altitudi og hlokkum til komandi strandatídar:)
Thetta blogg er ordid alltof langt, vid erum farnar út í sólina:)
Sigga, Inga María og ástsjúkur auli;)
| Mon | Tue | Wed | Thu | Fri | Sat | Sun |
|---|---|---|---|---|---|---|
| << < | Current | > | ||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
| 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
| 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
| 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
| 28 | 29 | 30 | 31 | |||
Sigga, Halla og Inga María á ferðalagi um Suður-Ameríku í 25 vikur