Póstur: Titikaka og Machu Picchu

15.05.2007

Permalink 21:27:02, Flokkar: Peru  

Titikaka og Machu Picchu

Heil og sael!!

Thá er loksins kominn tími á bloggfaerslu.. hofum ekki haft lausa stund til ad fara á netid sídustu daga:)

Thid sem hafid skodad myndirnar hafid eflaust tekid eftir tví ad vid fórum til Titikaka vatns thar sem vid heimsóttum eyjaskeggja og gistum hjá theim yfir nótt. Til ad afla aukatekna eru flestallir íbúar eyjarinnar Amantani med aukaherbergi í húsinu sínu. Their skiptast svo á ad taka túrista í gistingu, gefa theim kvoldmat og morgunmat, thjónusta thá á allan hátt og klaeda thá upp í hefdbundin fot og fara med á dansleik um kvoldid. Eins og thid getid ímyndad ykkur var thetta ólýsanleg upplifun og eitthvad sem vid munum muna eftir alla aevi. Á Titikaka vatni heimsóttum vid líka eyjuna Taquile (sem státar af tví ad vera eina hundalausa eyjan á vatninu!!), gengum um hana og fengum kennslu í klaedaburdi eyjaskeggja. Til daemis eru einhleypir menn med einskonar skotthúfur med hvítu skotti en their giftu med marglitar húfur. Jómfrúr bera svo húfur sem minna á blóm. Á Taquile fengum vid fisk í hádegismat. Fiskur thessi er adalfaeda íbúa eyjanna thar sem mikid er af honum í vatninu. Enska heitid á honum er trout..hvad er thad á íslensku? Á Amantani spiludu trukklimir fótbolta vid innfaedda og var mjótt á munum. Lofthaedin var hinsvegar ekki á okkar bandi og unnu innfaeddir í aesispennandi brádabana vegna thess ad of dimmt var ordid til ad sjá boltann:)

Seinni daginn á vatninu heimsóttum vid hinar fljótandi Uros eyjur. Thaer eru gerdar úr sefi sem vex í vatninu og endist hver theirra í 12-14 ár. Thar fengum vid ad bragda á sefinu (sem er samt ekki mikid bragd af) sem er mjog kalkríkt og ástaedan fyrir tví ad Uros fólkid er med jafn gódar tennur og raun ber vitni.. tad eru nefnilega engir tannlaeknar á eyjunum og var okkur stranglega bannad ad gefa krokkunum thar nammi. Uros fólkid fór ad búa til thessar eyjar og lifa á theim til ad flýja inkana sem rédu ollu á meginlandinu. Núna snýst allt tharna um túrisma, allir med bása ad reyna ad selja handverk sín, en samt gaman ad sjá thetta:)

Eftir ad hafa heimsótt Titikaka lá leid okkar beint til Cusco og Machu Picchu. Ádur en vid byrjudum Lares Trekkid vórum vid til hins helga dals, eda Sacred Valley, ad skoda rústir og laera um sogu inkanna. Thar, uppi á Ollantaytambo rústunum, hittum vid íslenskt par! Thau Elmar Geir og Bergthóra hafa verid ad ferdast um heiminn í nokkra mánudi og vorum vid fyrstu Íslendingarnir sem thau hitta! Voru ad vonum fagnadarfundir og ákvádum vid ad hittast um kvoldid á írska barnum í Cusco, thegar vid hofdum bladrad svo lengi ad hópurinn okkar var longu farinn á undan okkur og leidsogumadurinn thurfti ad koma tilbaka ad saekja okkur. Til gamans má geta ad Íslendingar thessir eru vinir Thórnýjar sem vid hittum í Sucre.. svona erum vid lítil thjód!

Tveimur dogum sídar hófst svo Lares gangan okkar. Byrjudum á ad kaupa kókalauf og braud á lókal markadi til ad gefa fólki sem yrdi á vegi okkar. Thad á ad gefa bornum braud ad bíta í á fjollunum... og gamla fólkid fékk kókalaufin:) Fyrsta daginn endadi gangan í 4200 m haed thar sem vid tjoldudum og dóum naestum úr kulda!! Í alvoru, thad SNJÓADI THARNA!!! Leidsogumadurinn okkar sagdi okkur ad hann hefdi aldrei gengid tharna í snjó ádur og var hann heldur smeikur um ad einhver okkar rynni til og dytti (sem vard svo raunin, en ekki fyrr en vid vorum komin nidur úr snjónum..) Dagur tvo átti ad vera sá erfidasti thar sem klifrad var upp á fjallstopp í 5000 m haed, en vid prinsessurnar áttum rád vid thví og leigdum okkur bara hesta upp erfidasta hjallann;) Svo hélt gangan langa áfram í snjónum og thví sem átti ad vera stórfenglegu útsýni, en vid fengum bara stórhríd og thoku.. Loksins thegar vid komum nidur úr snjónum, vedrid ordid gott og thokunni ad létta, thá tekst Andy ad detta og svoleidis molbrjóta á sér okklann. Hann braut víst baedi beinin og var í adgerd í 4 klst. greyid.. en honum lídur betur núna, útskrifast eftir 3-4 daga af spítalanum og flýgur heim til Englands eins fljótt og haegt er:) Nú var eins gott ad Team Iceland sparadi orkuna thví thad var ekkert annad til ráda en ad búa til sjúkraborur úr tjaldstongum og ponchoum, bundnum saman med treflum, og bera aumingja manninn nidur. Tólf manns skiptust á ad bera manninn og hinir fimm báru alla bakpokana og farangurinn. Burdarmennirnir komu svo seint og um sídir og tóku vid af hópnum.. flestir fóru beint heim í brádabirgdartjaldstaedid sem gert var fyrir okkur í thví sem hefdi átt ad vera hádegisstoppid en Sigga, Meg, Lars og Pat urdu eftir og hjálpudu til vid ad bera Andy alla leid nidur í baeinn thar sem sjúkrabíll beid hans. Eins og thid vitid fór Sigga svo med Andy á spítalann. Restin af hópnum gekk til Ollantaytambo daginn eftir thar sem vid hittum Siggu aftur og lest var tekin til Machu Picchu. Thar sem vid hofdum tafist um átta klst. vegna meidsla Andys klárudum vid ekki gonguna sem slíka heldur gengum stystu leid í baeinn eftir veginum. Oll gangan er um 50 km long en aelti vid hofum ekki gengid um 40 km.

Machu Picchu er aedi! Alveg suddagedveik! Nei ad ollu gamni slepptu thá er ekki haegt ad lýsa thessu.. setjum inn myndir brádlega en thad er samt ekki thad sama, thid verdid bara ad fara thangad sjálf;) Vid komum thangad klukkan sjo ad morgni í austfjardathoku, sáum ekki handa okkar skil, en thad var aevintýralegt ad sjá thegar létti til og borgin birtist fyrir augum okkar. Vid gengum upp ad Sólarhlidinu en thar sem Inga María var veik (aeldi fimm sinnum í eins og hálfs tíma lestarferd.. geri adrir betur!!) slepptum vid thví ad fara upp Wayna Picchu fjallid, gerum thad bara naest;)

Thegar vid komum til baka (tvíbaka, flatbaka...haha) til Cusco hittum vid ANNAN Íslending!! Thad er greinilegt ad vid erum komnar til thess hluta Sudur-Ameríku sem flestir ferdast um! Hann heitir Arnar og býr hérna í Cusco, er ad laera spaensku og fer svo í sjálfbodastarf sídar meir. Hann er líka náfraendi Rakelar vinkonu okkar:) Thar áttum vid tvo daga sem Hallgerdur og Sigurbjorg eyddu á borunum en Inga María í rúminu.. lasin, ekki ad skemmta sér. Mamma.

Núna erum vid staddar í baenum/borginni Arequipa í 2600 m haed, loksins komnar úr thessu helvítis altitudi og hlokkum til komandi strandatídar:)

Thetta blogg er ordid alltof langt, vid erum farnar út í sólina:)

Sigga, Inga María og ástsjúkur auli;)

Trackback address for this post:

http://www.suduramerika.com/htsrv/trackback.php/77

Skoðanir, Trackbacks:

Athugasemd frá: Siggupabba [Félagi] Email
Hæ, hæ.
Það mætti kannski segja að þið væruð á Íslendingaslóðum ! Dálítið merkilegt að rekast á alla þessa landa þarna. Ekki þar fyrir það eru Íslendingar úti um allan heim, en að rekast svona títt á þá í margmenninu er dálítið sérstakt. Var einhver að tala um "barflugur"? ;-).
Fiskinn sem þið voruð að borða þarna köllum við einfaldlega silungur á okkar áskæra ylhýra, trout er samheiti yfir nokkrar tegundir ferskvatnsfiska af laxaætt.

Siggupabbi
PermalinkPermalink 16.05.2007 @ 10:30
Athugasemd frá: Siggupabba [Félagi] Email
Skrítið!
Það eru komnar um og yfir tuttugu flettingar á síðustu myndunum frá stelpunum, en það kvittar enginn fyrir komu sinni hingað :-(
Veit að þær gleðjast þó ekki kæmi nema "Var að kíkja, Gróa"

Siggupabbi
PermalinkPermalink 18.05.2007 @ 11:36
Athugasemd frá: Grenimel [Gestur] Email
Halló stúlkur!

Já, ég er alveg sammála Siggupabba að það mættu fleiri kommenta.......það er nefnilega póstkortalíki fyrir ykkur að fá kveðju hérna.
En hvernig gengur? Hvar eruð þið núna? Ég er auðvitað alltaf af skoða á google staðina sem þið heimsækið og hef vistað í möppu fullt af myndum frá þessum stöðum.
Helge og Berit Lövskar eru að koma í dag og verða hér í 10 daga. Vonandi verður veðrið almennilegt á meðan þau eru hér. Í maí í fyrra kom ógeðslegur frostakafli en menn muna ekkert eftir því lengur......við eigum myndir af grænum trjánum með grýlukerti.
Ætlið þið að koma með okkur Laugaveginn um verslurnarmanna helgina? Það er pláss fyrir ykkur allar + tvo í viðbót. Við pöntuðum skálagistingu fyrir 12 en erum bara 7 alveg ákveðin.
Hafið það sem allra best :)
PermalinkPermalink 18.05.2007 @ 14:37
Athugasemd frá: krissa [Gestur] Email · http://www.krissaogkiddi.blog.is
Hae hae saetu! Er stodd her i Berlin og get ekki annad en hugsad til ykkar! Eins og adur hefur komid fram öfunda eg ykkur ekkert sma mikid af tessari ferd en eg er alla vega fegin ad vera komin i mina eigin ferd. 'Asgeir er buinn ad plana eitthvad tvilikt constuction work i kringum roskilde campid okkar, mer lyst hreinlega ekki a blikuna... Eg er mjög forvitin yfir tessari flugvel sem inga maria segist hafa fengid ad fljuga! hvad er malid med tad?!
PermalinkPermalink 19.05.2007 @ 19:34
Athugasemd frá: Frá Ingu Birnu [Gestur] Email
Hún ætlaði að kommenta í dag en netið eða tölvan fór ekki í gang. Hún les alltaf allar færslur frá ykkur og biður vel að heilsa.
......skrifar Mía fyrir Ingu Birnu :)
Við Glói biðjum að heilsa....!!
PermalinkPermalink 19.05.2007 @ 21:13
Athugasemd frá: Sissí [Gestur] Email
Ég vildi að ég væri þarna með ykkur.......og að ég væri núna á ykkar aldri og gæti ferðast áhyggjulaus um allan heiminn :)
Þetta hlýtur að vera algjör draumur.
Sé ykkur í sumar! Býð ykkur heim í nýju íbúðina mína sem er á Gettisgötu á móti Nýló, með útsýni yfir borgina. Þið gangið upp 67 tröppur og segið mér svo ferðasögur.
Skemmtið ykkur vel!!
PermalinkPermalink 19.05.2007 @ 21:21
Athugasemd frá: Anna [Gestur] Email
Rakst á þessa síðu, og það er mjög spennandi að lesa um ferðir ykkar.
Flott síða, fær mann til að langa til Suður- Ameríku og skoða;)

Anna
PermalinkPermalink 22.05.2007 @ 11:28
Athugasemd frá: Laufey [Gestur] Email
Rakst á síðuna þegar ég var að leita að upplýsingum um suðurameríku, er að hugsa um að fara á svipaðar slóðir sjálf. skemmtileg frásögn.
PermalinkPermalink 22.05.2007 @ 11:35
Athugasemd frá: ragnheiður freyja [Gestur] Email
Rakst á þessa síðu, áhugavert blogg. Gangi ykkur vel
PermalinkPermalink 22.05.2007 @ 11:40
Athugasemd frá: Bönga [Gestur] Email
Halló elskurnar og takk fyrir frábæra og mjög innihaldsríka færslu,mér finnst ég bara hafa verið þarna með ykkur því þið lýsið öllu af svo mikilli innlifun og á fallegu máli,veit íslenskukennarinn ykkar af þessu?? Allavega, vildi bara segja líka að þið eruð rosalegar hetjur eins og sjá má af dugnaði ykkar og úthaldi þegar félaginn slasaði sig, ég er svo stolt af ykkur, þið eruð greinilega af sama toga spunnar og Þuríður formaður og aðrir íslenskir kvenskörungar. Hlakka til að heyra meira frá ykkur og sjá ykkur í sumar!

kramar frá stokkhólmi,
bönga.
PermalinkPermalink 22.05.2007 @ 12:08
Athugasemd frá: Anna Karen [Gestur] Email
Hæ stelpur, hæ Inga María!

Ég er núna á Grenimelum og verð hér í nótt því á morgun flyt ég til Spánar um óákveðin tíma......kannski forever ef það er gaman :)....allavega í einhverja mánuði.
Eruð þið ekki orðnar góðar í spænskunni verandi í spænskumælandi löndum mánuðum saman? Flott ferð hjá ykkur og gaman að lesa bloggið ykkar.
PermalinkPermalink 23.05.2007 @ 00:28
Athugasemd frá: Ingó frændi [Gestur] Email
Hæ stelpur! Ekki bara að maður lesi af ævintýrum hér heldur fær maður hetjusögur í bónus! :D
Ég er nú orðinn alveg desperate að komast til S-Ameríku núna. Sérstaklega þessa dagana þegar það á að vera að koma sumar hér en það er bara skítakuldi og snjóaði meira að segja núna um helgina :(
Jæja en ég verð allavega kominn til Perú innan árs. Það er góðs viti :)
Sjáumst stelpur.
PermalinkPermalink 23.05.2007 @ 00:57
Athugasemd frá: Eva Björk [Gestur] Email
Hæ Sigga hérna er heimilisfangið sem þig vanntaði ;)
Flat 6, The Hampden Building
Kidlington High Street
Oxford
OX52FN

Var líka að átta mig á því að það er bara rétt svo mánuður í að við hittumst á hróa!! :D get ekki beðið!
PermalinkPermalink 23.05.2007 @ 22:49
Athugasemd frá: Ólöf Erla [Gestur] Email
Sælar stelpur. Ég fylgist alltaf með ykkur hérna öðru hverju. Haha, fyndið að þið skuluð hafa hitt Arnar Þór. Hann var með mér og Rakel í bekk í Borgarnesi. Ég bið að heilsa honum ef þið hittið hann aftur.
PermalinkPermalink 02.06.2007 @ 11:45

Comments are not allowed from anonymous visitors.

February 2012
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
<< <     
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29        

Ævintýri í Suður-Ameríku

Sigga, Halla og Inga María á ferðalagi um Suður-Ameríku í 25 vikur

Locations of visitors to this page

Leita

Flokkar

Ýmislegt

XML Straumar

What is this?

powered by
b2evolution