Póstar í: June 2007

30.06.2007

Permalink 00:03:54, Flokkar: Argentina  

keep it unreal..


Jaeja.. fljúgum í fyrramálid! eigum bara eftir ad pakka og reyna ad sofna.. hehe.. thó vid séum ad leka nidur af threytu thá grunar okkur ad klessurnar thrjár sofi heldur lítid í nótt;)

sjáumst..eftir einhverja klukkutíma!

Thríeykid.

28.06.2007

Permalink 01:20:56, Flokkar: Venezuela  

Endalokin

Nú er thetta orugglega sídasta faerslan frá okkur skrifud hérna í Sudur Ameríku.. í bili ad minnsta kosti!
Vid erum ad íhuga ad halda thessarri sídu lifandi eftir heimferd og í naestu ferdir, já vid hofum stór plon!

Vid fórum sumsé til Tayrona eftir sídustu faerslu og vorum thar í 4 naetur. Fjóra yndislega daga med honum Óskari okkar, gerdum lítid annad en ad borda kókoshnetur en thad er líka mjog notalegt ad slappa af. Strendurnar thar eru aedi! Algjor paradís á jord.. Kókoshnetur út um allt auk risa mangó- og goyaba trés. Goyobin sem vid bordudum voru samt med ormum í, svo vid bordudum ekki mikid fleiri eftir fyrstu reynsluna. Samt bara prótín sko gott mál thad. Sváfum í hengirúmum tharna og voknudum á nóttunni vid tístid í ledurblokunum nágronnum okkar. Á morgnana kom svo íkorni í heimsókn sem gegndi hlutverki vekjaraklukku fyrir okkur. Íkornar gefa frá sér vaegast sagt undarleg hljód sem erfitt er ad sofa undir.. Thad er samt ekkert á vid asnana sem gefa frá sér asnalegustu hljód í heimi!! Í alvoru talad, hafid thid einhverntímann heyrt í asna? Já dýralífid tharna var vaegast sagt skrautlegt, edlur, krabbar og fidrildi hvert sem madur leit:)

Kynntumst pari tharna sem heita Louis Carlos og Olga Janet, thau eru kolumbísk og eru gott daemi um fólkid hérna. Rosalega vinaleg og almennileg og vildu allt fyrir okkur gera. Reyndar eru Kólumbar, Kólumbanar (?) gestrisnasta og fallegasta thjódin sem vid hofum kynnst hérna! Allir alveg hreint ótrúlega hjálpsamir og ganga út frá thví ad allir séu vinir, thar til annad kemur í ljós ad minnsta kosti. Eitthvad sem Íslendingar maettu alveg taka sér til fyrirmyndar. Til daemis ávarpa thau alltaf hvort annad vinur/mín fagra/ástin mín/froken o.s.frv. og allir eru síbrosandi og bara.. já almennilegir!

Allavega.. Louis og Janet voru partur ástaedunnar ad vid gistum thessa fjórdu nótt (thaer áttu upphaflega bara ad vera thrjár út af tímathrong). Sídasta daginn okkar budu thau okkur upp á nýveiddan fisk og platanos (svona eins og bananar.. nema hardari og bragddaufari og madur verdur ad steikja thá og salta) Herramannsmatur! Vid budum theim ad koma og heimsaekja okkur til Íslands :)

Óskar var kókoshnetumeistarinn okkar, hann er ordinn ýkt gódur í ad opna thaer med svedju. Thad er nefnilega ekki kvenmannsverk. Strákunum finnst samt rosa gaman ad gera thetta fyrir okkur stelpurnar :)
Já bordudum sem sagt yfir okkur af kókos, madur getur sko ekki haett thegar madur byrjar..

Svo kom ad thví ad fara til baka til Santa Marta enda einungis 5 dagar í flugid okkar til Evrópu.. Bjuggumst nottla vid ad thad vaeri bara minnsta mál í heimi ad fara og fá rútumida til Caracas. Annad kom hinsvegar í ljós, hér í Venezuela var nefnilega ad byrja Ameríkumeistaramótid í fótbolta og fólk frá naerliggjandi londum flykkist hingad í hronnum til ad fylgjast med. Á rútustodinni var okkur tilkynnt ad vid fengjum enga mida fyrr en í naestu viku og koma aftur thá takk fyrir og bless. Engin hjálpsemi thar á bae.. Vid vorum bara alveg lens og trúdum ekki eigin eyrum. Thad thýddi ekkert ad svekkja sig á thví enda mátti engan tíma missa. Beint á Avianca flugskrifstofuna, eftir ad hafa bedid thar í rúman hálftíma kom í ljós ad thar var allt uppbókad. Naesta flugskrifstofa átti EINN flugmida. Á 429 US dollara. Neibb.. ekki nóg, thví midur. Vid vorum alveg ad verda rádthrota og reyndum ad fá leigdan bílaleigubíl svo vid gaetum bara keyrt thetta! Thad var audvitad ekki heldur mogulegt. Gráti naest ákvádum vid ad geyma thetta til morguns og fengum okkur vel verdskuldadan bjór og kjúkling í karrí.

Naesta dag var lukkan med okkur, aetli thad hafi ekki verid gódir straumar frá ykkur heima ;) Klukkan sjo um morguninn voru thrjár galvaskar stúlkur uppfullar af bjartsýni sem logdu af stad á rútustodina. Konan á hostelinu okkar sagdi okkur bara ad stappa nidur fótum og segja ad okkur vantadi mida ekki seinna en NJÚNA og hananú.. Á leidinni út hittum vid Ítalann Arturo sem var einmitt ad fara til Venezuela eins og vid, deildum vid med honum mest toff leigubíl í heimi.. Risa gulur pallbíll (vid setjum inn mynd)
Allavega.. Thegar á rútustodina var komid kl 8:00 lobbudum vid beint inn á skrifstofu hjá Santa Marta-Caracas direct og tjádum stodu okkar. Madurinn thar var allur af vilja gerdur og hringdi morg símtol sem endadi med thví ad eitthvad fólk frestadi ferdum sínum fyrir okkur. Svona er thessi thjód upp til hópa, tilbúin ad gera allt fyrir náungann!

Klukkan 12 á hádegi stigum vid upp í vel loftkaelda lúxusrútu og hófst thar thetta 21 tíma ferdalag og hér erum vid maettar. Í Caracas. Heim! Finnst okkur nánast :)
Thad var vel tekid á móti okkur hjá Carmen, Nando og Melindu.. thau eru alltaf jafn aedisleg! Adnilem og Estefani eru ordnar miklu staerri en í desember :) Thad er komin auka haed á húsid theirra gomlu. Sundlaug á thakid og allt. Polar Ice er enn jafn gódur og vid fengum meiradsegja lakkrís í sjoppunni.. ekkert í líkingu vid okkar lakkrís thó, samt.. gaman :)

Á morgun aetlum vid ad reyna ad heimsaekja Mortu og Lalo og hinn daginn aetlum vid ad leyfa okkur ferd í mollid og Sabana Grande verslunargotuna. Svo er thad bara HRÓARSKELDA jább.. jájájá :) :) :)

Thad er svo óraunverulegt ad thessi ferd sé á enda. Vid bara trúum thví alls ekki. Mann langar heim, samt ekki. Thetta er bara ordid lífid okkar hérna. Ótrúlega gódir 6 mánudir ad baki. Vid hofum laert heilmikid um okkur sjálfar, hver adra, og fólk almennt!

Núna er klukkan 19:19.. vid aetlum ad setja inn myndir og koma okkur svo heim í rúmid.

Hróarskeldufólk.. sjáumst eftir 4 daga :) Thid hin.. eftir adeins lengri tíma ;)

kvedja
Sigga, Halla og Inga María

20.06.2007

Permalink 23:21:00, Flokkar: Argentina  

Santa Marta

Hae hae stutt kvedja hérna frá Santa Marta í Kólumbíu! Vid komum hingad í gaermorgun, fengum okkur thriggja manna herbergi á Casa Familiar, rooosa gódur andi thar og notalegt herbergi! Fórum út í gongutúr og fundum Óskar á 5 mínutum :)

Gaerdagurinn fór svo bara í ad tala um hvad á daga okkar hefur drifid undanfarid og svona.. Kíktum í naesta bae sem á ad vera adal partípleisid en thar var ekki mikid ad gerast. Thar rákumst vid hinsvegar á James sem var med okkur á Bernie trukk og tvo vini hans, áttum rólegt kvold med theim.

Á morgun erum vid ad fara í Tyrone thjódgardinn og thar aetlum vid ad eiga 3 naetur. Sofa í hengirúmunum okkar og borda kókoshnetur og mangó :)

33 stiga hiti og léttskýjad núna..
lífid er frábaert!

Sigga, Halla og Inga María

16.06.2007

Permalink 04:52:32, Flokkar: Argentina  

Halla, hvad heitir aftur landid sem vid erum ad fara til á morgun...?

Jaeja nú er thríeykid hrikalega ad fara til Kólumbíu í fyrramálid. Keyptum flugmida í dag og fljúgum til hofudborgarinnar Bogota kl 6:45. Yay, early start. Bara alveg eins og á Bernie.. :)

Ég er ein heima hjá Belén medan stelpurnar fóru ad kíkja á tónleika. Ég er nefnilega ennthá frekar slopp, endajaxlarnir ad koma upp. Mmm.. ekki gaman.

Svo ég keypti mér bara internetkort (svona svipad og inneign á símar virkar) og sit hérna í gódu yfirlaeti med meistara Jeff Buckley.

Vid getum séd svona hvadan heimsóknir á síduna okkar koma, m.a. frá leitarvélum, og thad getur verid soldid fródlegt ad sjá hverju fólk hefur verid ad leita ad thegar thad rambadi hingad inn.. hérna eru nokkur daemi:

"póstur Nýskráning"
"toposí hostel"
"Bænabók Þjóðkirkjunnar"
"gestur guðfræðinemi"
"halla, sigga og inga"
"smooth línur"
"fjörhjól"
og
"árabátur"

svo er "threesome" alltaf vinsaelt.. kemur annad slagid, og thá faer fólk einmitt ad lesa faersluna sem heitir The Terrible Threesome sídan einhvertíman.

Já, thad er gaman ad thessu. Svo er bara minna en mánudur í ad vid komum heim.. og ekki nema 2 vikur í Hróarskelduna :)
Hlokkum svo til ad hitta alla!

Hafid thad gott allir :*

Sigurbjorg 1/3

13.06.2007

Permalink 19:21:11, Flokkar: Ecuador  

Quito

Gódan daginn gódir hálsar!!

Vildum bara láta ykkur vita ad vid erum enn á lífi og lídur vel:) vid erum ennthá í Quito og erum fluttar inn á Belén og fjolskyldu hennar. Thad er ekki smá notalegt ad búa aftur inn á alvoru heimili, hofum ekki gert thad sídan vid fengum ad gista hjá strákunum í Buenos Aires. Vid hofum gert okkur heimakomnar og eldum og voskum upp sem ódar vaerum;) Erum annars búnar ad vera voda latar og fórum til daemis ekkert út í gaer. Thad er svo skrýtid ad túrinn okkar er loksins búinn, vid erum bara hálftýndar hérna..enginn ad segja okkur hvad vid eigum ad gera eda hvar ad vera á hverri stund.

Fjolskyldan hennar Belén er aedisleg. Vid eigum reyndar ennthá eftir ad hitta mommu hennar en erum búnar ad vera mikid í kringum ommuna. Hún er algert krútt, talar ekkert nema spaensku en laetur thad ekki stoppa sig í ad spjalla okkur alveg í kaf:) Hún vill allt fyrir okkur gera og hjálpar okkur m.a. ad taka leigubíl nidur í bae og svona. Voda gott ad láta sjá svona um sig aftur eftir ad hafa verid yfirgefnar af hópnum okkar;)

Tíminn hér í Quito er annars bara búinn ad fara í ad kvedja fólk. Thó ad thad sé mjog leidinlegt ad kvedja góda vini sem madur er búinn ad búa med mánudunum saman thá er andinn hérna miklu léttari en í Santiago..Orugglega vegna thess ad nú eru allir á leidinni heim brádlega og fólk hlakkar til ad hitta fjolskyldu og vini heima.

Í gaer, thegar vid vorum ad spá í hvad vid aettum eiginlega ad fá okkur í hádegismat, opnudum vid ísskápinn og vitidi hvad!! ÍSLENSKT NAMMI!! Okkur er búid ad dreyma um íslenskt nammi mánudum saman! Thetta var nánast of gott til ad vera satt. Belén hafdi komid heim frá Íslandi sídast med Nóa konfekt, mondlur, bangsahlaup úr Bónus og LAKKRÍS!! Og thad sem meira er.. Sudur- Amerískt fólk bordar ekki lakkrís svo vid fengum ad klára hann:) Hamingjusamari stúlkur mátti ekki finna í Sudur-Ameríku allri á thessari stundu!

Í dag aetlum vid ad vera svolítid aktívar og fara út ad skoda fallega kirkju sem Belén sagdi okkur frá, fara svo upp ad styttunni af Maríu mey og í gamla baeinn á kaffihús.. svo í kvold forum vid enn og aftur upp á hótel ad kvedja fólk, í thetta skiptid Maríu, spaensku vinkonu okkar. Sem er svo sannarlega ekki mey! Enda 37 ára gomul kellingin!

Vid settum inn fullt af myndum í gaer.. bara svona maedrum til advorunar thá eru thaer allar frá skemmtanalífinu. Thetta virdist vera mjog mikid en eru í raun bara thrjú kvold med nokkru millibili. Ástaedan fyrir myndaflódinu er sú ad tharna erum vid ad kvedja fólk og viljum muna hverja stund..

Jaeja, farnar ad skoda kirkju:)
Sigga, Halla og Inga María
(sem eru ekki skemmtanasjúkar)

08.06.2007

Permalink 01:25:57, Flokkar: Ecuador  

bridge swing

hoppudum fram af brú í dag.. hér eru myndirnar, nádum líka video af okkur ollum í thetta skiptid :) thid fáid ad sjá thad thegar vid komum heim!

erum enn í baños, forum til quito á morgun og hittum svo hópinn okkar í otavalo á laugardag.. allt ad gerast!

Sigga, Halla og Inga María

06.06.2007

Permalink 20:59:24, Flokkar: Ecuador  

Baños

Haehae!!

Montañita var aedislegur baer, lítill og krúttlegur med svona hippastemmningu og kósýheitum. Thad eina sem vid fundum ad honum í rauninni er thad ad thad var skýjad allan tímann sem vid vorum tharna svo vid gátum ekki workad á taninu sem bera skyldi. Thessvegna fannst okkur thrír dagar tharna alveg feikinóg og tókum rútu til Baños í fyrrakvold.

Baños er annar lítill og krúttlegur túristabaer med alveg helling af activities í bodi! Hédan er til daemis haegt ad fara í Amazon frumskóginn, leigja fjórhjól, hoppa fram af brú sem vid aetlum ad gera (aftur) á morgun :) og svo er haegt ad fara í canyoning sem er svona ad síga nidur fossa.. Já og heitu bodin sem stadurinn fékk nafnid sitt frá! Tékkudum á theim í gaer, thad reyndist bara vera svona risa heitur pottur. Samt mjog kósý, vid aetlum aftur í kvold.

Vid komum hingad kl 5 í gaermorgun og fórum á fyrsta hostelid sem vid sáum. Thad rekur ótrúlega lítil og saet kona á sextugsaldri sem er eins og mamma okkar :) Hún aetlar ad gefa okkur andlitsbad í kvold, og vid hittum hana í pottinum í gaerkvoldi thar sem hún skvetti á okkur ískoldu vatni og flissadi! Hún minnir okkur rosalega á Carmen sem vid bjuggum hjá í Caracas.

Hópurinn okkar af Bernie trukk eru hérna líka, thau eru ad tjalda einhverstadar 17 km frá baenum, borga thad sama og vid á nóttina (5 usd) og thurfa ad borga 10 usd í leigubíl til ad koma inn í bae.. algjort kjaftaedi en Alan tour-leaderinn okkar sagdi ad thessi ákvordun hefdi ekki verid í hans hondum. Stundum skiljum vid ekki alveg hvernig thetta Budget expeditions virkar. Vid erum haestánaegdar ad vera ekki í túrnum thó thad sé audvitad gaman ad hitta fólkid okkar. Vid aetlum líka ad hoppa upp í trukkinn og fá far med theim til Quito eftir 2 daga.

Annars er voda lítid ad frétta, vid erum bara rólegar ad rolta um baeinn á daginn, (hehe rímar), skodudum kirkjuna í dag og lentum inn í midri messu. Thad var bara kósý, sátum tharna messuna á enda og erum núna fullar af heilogum anda. Ekki vínanda! til tilbreytingar..

Vonandi hafa allir thad gott heima og hvar sem thid erud.. Hlokkum til ad sjá alla :) :)

kossar og knús
Sigga, Halla og Inga María

(sem eru sífellt ad faerast naer thví ad verda ferdalangar en túristar)

04.06.2007

Permalink 01:30:45, Flokkar: Djamm, Ecuador  

gladningur!!

sjódheitar myndir...
Erum í Montañita í Ecuador. Haettar á trukknum. Lífid er gott :)

Sigga, Halla og Inga María

June 2007
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
<< < Current > 
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30  

Ævintýri í Suður-Ameríku

Sigga, Halla og Inga María á ferðalagi um Suður-Ameríku í 25 vikur

Locations of visitors to this page

Leita

Flokkar

İmislegt

XML Straumar

What is this?

powered by
b2evolution