Póstar í: July 2007, 11

11.07.2007

Permalink 22:05:41, Flokkar: Ísland  

heimkoma!

Ég er ekki lengur 1/3. Nú verð ég að læra að standa á eigin fótum aftur. Við Inga María kvöddum Höllu med trega í morgun og svo skildust leiðir okkar á Leifsstöð í dag. Nú þarf ég að fara ein í háttin og vakna ein. Taka sjálfstæða ákvörðun um það hvað ég eigi nú að fá mér í hádegismat.

Það er samt rosalega notalegt að vera kominn heim til mömmu og pabba og rúmsins síns og alls! Jáh og loksins fékk ég langþráða páskaeggið mitt sem elskuleg móðir mín hefur geymt samviskusamlega í ísskápnum síðan um páska. :)

Hróarskeldan var alveg klikkað mikið fjör, við fylltum myndavélina og myndirnar koma hingað inn á næstu dögum. Veit ekki hvað skal segja um hátíðina nema hvað að þetta var alveg topp stopp á leiðinni heim, hitta alla vinina, læra að henda klósettpappír í klóstið (kamarinn) aftur, og fá evrópskan mat!

Hlakka til að hitta ykkur öll, eða velflest, elsku vinir. Á næstu dögum!!

Kveðja,
Sigurbjörg

July 2007
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
<< < Current  
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Ævintýri í Suður-Ameríku

Sigga, Halla og Inga María á ferðalagi um Suður-Ameríku í 25 vikur

Locations of visitors to this page

Leita

Flokkar

Ýmislegt

XML Straumar

What is this?

powered by
b2evolution