Flokkur: París

16.12.2006

Permalink 20:03:39, Flokkar: París  

París

Það er ekki alveg að gera sig að drekka kippu kvöldið áður en maður fer í flug, en ekkert sem kókómjólk, powerade og sjóveikistöflur laga ekki. Hamborgari, kók og panodil fyrir svefinn hjálpuðu líka örugglega til.
Við vöknuðum semsagt galvaskar um hálffimmleytið í nótt og lögðum í hann. Flugvöllurinn er alltaf að breytast og fólkið þar að verða geðvondara með hverri utanlandsferðinni. Tóku af okkur tannkremstúbu sem var 125 ml en það má bara hafa 100 ml einingar í handfarangri, tóku líka sápubrúsa sem ein konan var reyndar búin að lofa okkur að slyppi í gegn. Jæja.. þýðir svosum ekki að gráta það!

Mikil þreyta í flugvélinni á leiðinni en náðum allar að sofa eitthvað. Ég var án gríns svo klikk að ég ruglaðist og ætlaði að setja heyrnatappana í augun..

Fengum öndvegis ommulettu í matinn!

Mikið mikið yndislegt að koma í heimahús Rikka og Ástu og fá grillaðan kjúlla og kartöflur í hádegismat en dagurinn fór svo í
a) að skipta út harða diskinum sem var keyptur beyglaður í morgun og
b) að kaupa bakpoka handa höllu

Halla greyið ekki sem hressust, prófaði í fyrsta skipti að gubba á frönsku kaffihúsi :)

Komum við í apóteki á leiðinni heim núna áðan til að kaupa íbúfen í veika dýrið, frakkar eiga ekkert íbúfen heldur bara GELLUFEN aha.. bara fyrir gellur :p

Heyrið líklega í okkur næst eftir helgi í Venezuela.. þangað til, hafið það gott!

Sigga og einhverjar sofandi hrúgur

15.12.2006

Permalink 11:56:48, Flokkar: París  

Alveg að koma að þessu

Við fljúgum semsagt út eldsnemma í fyrramálið, fyrst er förinni heitið til Parísar þar sem við ætlum að gleðja Rikka bróður minn með nærveru okkar í einn sólarhring :)
Þaðan verður flogið til London með 2 tíma stoppi og síðan Miami með 12 tíma næturstoppi. Lending í Caracas er áætluð á hádegi þann 18. des

Mig dreymdi enn einu sinni í nótt að ég eignaðist barn.. ég hef hreinlega ekki tölu á því lengur hversu oft mig hefur dreymt þann draum, en nú fletti ég upp á því í stóru draumaráðningabókinni okkar og viti menn:

"Finnist konu hún hafa eignast barn í draumi þótt hún hafi ekki verið ólétt mun henni takast að ljúka ætlunarverkum sínum á farsælan hátt"!
ekkert nema gott og blessað það :)

jæja yfir og út, bloggum frá PARÍS á morgun

Sigga

September 2010
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
<< <     
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Ævintýri í Suður-Ameríku

Sigga, Halla og Inga María á ferðalagi um Suður-Ameríku í 25 vikur

Locations of visitors to this page

Leita

Flokkar

Ýmislegt

XML Straumar

What is this?

powered by
b2evolution