Hæ
Ég er ekki lengur 1/3. Nú verð ég að læra að standa á eigin fótum aftur. Við Inga María kvöddum Höllu med trega í morgun og svo skildust leiðir okkar á Leifsstöð í dag. Nú þarf ég að fara ein í háttin og vakna ein. Taka sjálfstæða ákvörðun um það hvað ég eigi nú að fá mér í hádegismat.
Það er samt rosalega notalegt að vera kominn heim til mömmu og pabba og rúmsins síns og alls! Jáh og loksins fékk ég langþráða páskaeggið mitt sem elskuleg móðir mín hefur geymt samviskusamlega í ísskápnum síðan um páska. :)
Hróarskeldan var alveg klikkað mikið fjör, við fylltum myndavélina og myndirnar koma hingað inn á næstu dögum. Veit ekki hvað skal segja um hátíðina nema hvað að þetta var alveg topp stopp á leiðinni heim, hitta alla vinina, læra að henda klósettpappír í klóstið (kamarinn) aftur, og fá evrópskan mat!
Hlakka til að hitta ykkur öll, eða velflest, elsku vinir. Á næstu dögum!!
Kveðja,
Sigurbjörg
við þurfum að fara að redda þessum youth travel skírteinum, kreditkortum, millistykkjum, og vodafone kortum.. ha stelpur
:)
virkar html?
núna er 31 dagur í að ferðalagið hefjist! 3 dagar í tvítugsafmælið og 39 dagar í jólin :)
| Mon | Tue | Wed | Thu | Fri | Sat | Sun |
|---|---|---|---|---|---|---|
| << < | ||||||
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 | |||
Sigga, Halla og Inga María á ferðalagi um Suður-Ameríku í 25 vikur